ÍSLENSKI NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐURINN
Ísland er eitt síðasta vígi villta Norður-Atlandshafslaxins.
Laxeldi í opnum sjókvíum ógnar öllum villtum laxastofnum
á Íslandi.
Mynd: Einar Falur Ingólfsson
Kynnið ykkur málið
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Fréttir
Mengun frá sjókvíaeldi drepur refi á Vestfjörðum
,,Núna er fækkun á ref slík að undarlegt má teljast,“ segir Ástþór Skúlason, bóndi á Melanesi á Rauðasandi í viðtali við Sigurð Bog Sævarsson, blaðamann Morgunblaðsins. Skýringar telur hann liggja í þeim áherslum sem séu í sjókvíaeldi á laxi, sem víða er stundað á...
Gríðarlegur laxadauði í kvíum Mowi, móðurfélags Arctic Fish
Um 17.600 eldislaxa drápust á einum sólarhring í sjókvíum Mowi, móðurfélagi Arctic Fish, við Kanada 20. júlí. vegna þörungablóma sem þurrka upp súrefni í sjónum. Eldislaxarnir geta ekki komist úr þessum aðstæðum, eru fastir í netapokunum og kafna. Í íslenskum fjörðum...
Laxadauði í sögulegu hámarki: Minnst 2.855.173 laxar drepist fyrstu sex mánuði ársins
MAST var að birta tölur yfir dauða og förgun eldislaxa í sjókvíunum fyrir júní og því komnar tölur fyrir tvo fyrstu ársfjórðunga 2025. Ástandið hefur verið hræðilegt allt þetta ár, enn verra en afleit árin þar a undan. Alls hafa 2.855.173 eldislaxar drepist eða verið...
Einhverjar spurningar?
Hafðu samband
Skilmálar og persónuvernd
Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni ( non – profit ).
Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.
Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er félag í:






