Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Myndband: Hárbeitt háðsádeila Project Slingshot

Myndband: Hárbeitt háðsádeila Project Slingshot

Svona er sjókvíaeldi allsstaðar þar sem það er stundað. Nema hér við land láta sjókvíaeldisfyrirtækin enn þá fleiri eldisdýr drepast í sjókvíunum vegna lúsasmits, blóðþorra, þörungablóma, marglyttna, hjartveiki eða annarra sjúkdóma sem hrjá úrkynjaðan...