Margra tonna flothringur af sjókví í eigu Arctic Fish slitnað laus í Patreksfirði þegar búið var að draga hann af strandstað og rak í burtu á nýjan leik. Myrkur var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað. Hringinn rak um einn til tvo kílómetra þar til hann strandaði aftur og situr nú fastur segir í frétt RÚV. Hvorki lögregla né Landhelgisgæslan var höfð með í ráðum.
Flothringurinn losnaði fyrst fyrir fimm vikum og rak þá stjórnlaust um fjörðinn áður en hann strandaði.
Hvernig haldið þið að þessum fyrirtækjum gangi að halda eldislöxunum innan netapokanna?
Í frétt RÚV segir meðal annars:
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. …
Í gær átti að sækja hann og koma honum á öruggan stað. Það gekk ekki betur en svo að þegar búið var að draga hringinn á flot slitnaði hann frá og rak í burtu á nýjan leik. …
Þetta staðfesti Egill Ólafsson, þjónustustjóri Arctic Fish, í samtali við fréttastofu. …
„Við erum bara að bíða eftir að veðrið lægi. Við förum um leið og það gengur niður af stað aftur. Við erum að vonast til að geta farið af stað um miðjan dag.“
Flothringurinn hefur verið strand í rúmar fimm vikur. …
Fréttastofa setti sig í samband við lögregluna á Vestfjörðum sem hafði ekki heyrt af málinu. Sömu sögu er að segja af Landhelgisgæslunni og björgunarsveitinni á svæðinu. Enginn var kallaður til aðstoðar. Slíkur hringur vegur allt að 25 tonn og getur verið hættulegur smærri bátum.
Einar Helgason, formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum, sagði í samtali við RÚV í síðustu að flothringir væru stór og þung fyrirbæri sem sæjust illa í sjó og væru sérstaklega hættuleg smábátum þegar þeir væru á reki. „Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring,“ sagði Einar.