Sjókvíaeldisfyrirtækin fyrir vestan hafa ítrekað misst frá sér flothringi úr sjókvíum á undanförnum árum. Þau lofa bót og betrun en er fyrirmunað að standa við orð sín. Ef þau geta ekki haldið margra tonna flothringjum á sínum stað er auðvelt að sjá fyrir sér hversu vel (illa) þeim gengur að halda 60 gramma seiðum og nokkurra kílóa eldislöxum innan netapokanna.
Í meðfylgjandi frétt RÚV segir Einar Helgason, formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum, flothringina stór og þung fyrirbæri sem sjáist illa í sjó og séu sérstaklega hættuleg smábátum þegar þau eru á reki.
„Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring.“
Í frétt RÚV segir meðal annars:
Arctic Fish ætlar að fjarlægja sjókví úr fjöru í Patreksfirði í næstu viku eftir rúman mánuð í fjöruborðinu. Reglulega berast tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki vegna siglingahættu. …
Hefur legið í fjörunni í mánuð
Um miðjan september rak flothring af sjókví á land í sunnanverðum Patreksfirði. Hann var ekki í notkun, á honum voru engin net og enginn fiskur hafði verið í kvínni. Hann losnaði vegna veðurs og rak upp í fjöru. Hringurinn sjálfur er nokkur tonn að þyngd og erfitt reyndist að ná honum burtu vegna veðurs. …Eftir umfjöllun fréttastofu hafði Umhverfis- og orkustofnun, sem gefur út starfsleyfi fiskeldisfyrirtækja, samband við Arctic Fish, eigendur kvíarinnar. „Svörin voru að þau ætla að fara í næstu viku og ná í kvína og eru bara að bíða eftir veðurglugga til að komast,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, teymisstjóri í teymi eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun. „Ef að fyrirtækið gerir það ekki þá munum við fylgja því eftir með þvingunarúrræðum.“ …
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sjókví rekur á land. Síðasta vetur sagði fréttastofa frá kví sem var strand á sömu slóðum. Sú var í eigu Arnarlax. Svona ramma rak líka á land 2020 og 2024. Þá berast reglulega tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki. Viðbrögð Landhelgisgæslunnar eru þá að krefja eigandann um að sækja kvína og vara sjófarendur við siglingahættunni.