Við vonum innilega að forstjóri Matvælastofnunar (MAST) hafi rétt fyrir sér um að ástandið sé ekki alvarlegt. En að setja þá fullyrðingu fram á þessari stundu lýsir ákveðnu skilningsleysi á þeirri stöðu sem hefur teiknast upp.

Í stóru sleppingu Arctic Fish 2023 varð rétt einsog nú fyrst vart við sleppifiska í Haukadalsá. Hún er kanarífuglinn í námunni.

2023 voru sex staðfestir eldislaxar fjarlægðir úr Haukadalsá. Margfalt fleiri náðust í öðrum ám.

Norsku froskkafararnir bentu í síðustu viku á að megin göngutími eldislaxa er í september og október. Á örfáum dögum fundu þeir eldislaxa í fleiri ám en Haukadalsá og sáu meiri fjölda í ánum en þeir náðu fjarlægja.

Að treysta sér til að tala þetta ástand niður á þessari stundu, einsog forstjóri Matvælastofnunar, Hrönn Ólína Jörundsdóttir, er að gera, er afar bratt ef ekki beinlínis ábyrgðarlaust.

Við vonum að hún hafi rétt fyrir sér en vonin ein er engin vörn fyrir villta laxinn.

Við þurfum að vita hvað er í gangi í ánum. Til þess þarf áframhaldandi viðveru kafara. Fiskistofa, sem á að sinna þvi verkefni er gjörsamlega sofandi.

Á strokulax.is má fylgjast með því hvar strokulaxar hafa veiðst.