Sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík tapaði fjögurþúsund og fjögurhundruð milljónum króna í fyrra.

Fyrirtækið lét 1,2 milljón eldislaxa drepast tvo síðustu mánuði ársins og í janúar á þessu ári héldu hörmungarnar áfram þegar 245 þúsund eldislaxar drápust hjá fyrirtækinu í Berufirði, 118 þúsund drápust í Fáskrúðsfirði og 60 þúsund drápust í Reyðarfirði.

Alls lét fyrirtækið því í einum mánuði drepast 423 þúsund eldislaxa vegna ömurlegra aðstæðna í sjókvíunum.

Athugið að þetta ástand er viðvarandi ár eftir ár. Myndin sem hér fylgir er tekin í Reyðarfirði 2022 af fyrrverandi starfsmanni við sjókvíeldi á Austfjörðum sem ofbauð dauðinn í kvíunum. Áverkarnir sem sjást á eldislaxinum eru vetrarsár.