Rekstrartap sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur heldur áfram að hlaðast upp. Í rekstraruppgjöri fyrir þriðja ársjórðung 2025 kemur fram að fyrirtækið tapaði 757 milljónum króna (5 milljón evrum) á tímabilinu en áður hafði fyrirtækið tapað 2,4 milljarði króna fyrstu sex mánuði ársins.
Alls nemur rekstrartap fyrstu þrjá ársfjórðungana því um 3,2 milljörðum króna.
Gengi Kaldvíkur tók dýfu í kjölfar birtingu uppgjörsins og hefur verðmæti félagsins nú lækkað um 62 prósent á einu ári.
Kaldvík er að meirihluta í eigu norskra aðila og er eina fyrirtækið sem starfrækir sjókvíaeldi á laxi á Austfjörðum.
Meðferð á eldislöxunum hefur verið skelfileg af hálfu Kaldvíkur og fiskidauði hrikalegur í sjókvíunum.
Matvælastofnun (MAST) kærði fyrtækið í upphafi árs til lögreglu vegna brota a dýravelferðarlögum og sektaði fyrirtækið vegna brota á sömu lögum í öðru máli. Lögreglurannsóknin stendur enn yfir í fyrra málinu.
Gríðarlegur fjöldi eldislaxa drapst í sjókvíum Kaldvíkur í Berufirði í vor og sumar vegna þörungablóma. Þegar blóminn nær sér á strik eyðir hann súrefni úr sjónum og laxarnir kafna þar sem þeir eru fastir í netapokunum.
Samanlagt tap stóru sjókvíaeldisfyrirtækjanna þriggja, Kaldvíkur, Arnarlax og Arctic Fish, fyrstu níu mánuði ársins nemur um 7,8 milljörðum króna.
Ekkert þessara fyrirtækja mun því greiða tekjuskatt hér á landi frekar en fyrri ár.
Árið 2023 keypti útgerðarfyrirtækið Ísfélagið í Vestmannaeyjum 16 prósenta hlut í Kaldvík fyrir um 8,6 milljarða króna. Frá þeim tíma hefur markaðsvirði Kaldvíkur lækkað um rúmlega 62 prósent sem þýðir að Ísfélagið situr uppi með óinnleyst tap upp á ríflega 4,2 milljarða. Myndin sem hér fylgir sýnir gengi Kaldvíkur síðustu 12 mánuði.

Tekjur fiskeldisfélagsins Kaldvíkur námu 9,9 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi þessa árs, samanborið við 24,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, samkvæmt nýbirtu uppgjöri. Það jafngildir umtalsverðum tekjusamdrætti milli ára, sem skýrist að mestu af minni slátrun en áður.
…
Þrátt fyrir jákvæðan tekjuvöxt á ársgrundvelli skilaði félagið rekstrartapi á fjórðungnum.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, verðbreytingar lífmassa og fjármagnsliði (rekstrar-EBIT) var neikvæður um 5 milljónir evra, á móti 2,1 milljón evra hagnaði á þriðja ársfjórðungi í fyrra.
Það samsvarar um 3,3 evra rekstrartapi á hvert kíló af sláturfiski í stað 0,5 evra hagnaðar á kíló árið áður.
..Í rekstrarkynningu félagsins kemur fram að um 900 tonn af 23G-kynslóð hafi tapast í júlí vegna þörungablóma.
…Eiginfjárhlutfall stendur nú í 55 prósentum. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum (NIBD) jukust í 179 milljónir evra úr 152 milljónum í lok annars ársfjórðungs; þar vó neikvæð EBITDA, aukið veltufjárbinding, 4,3 milljóna evra fjárfestingar og 3,7 milljóna fjármagnskostnaður þungt.
…Horfur fyrir lok ársins og næsta ár eru nokkuð varfærnar. Afkomuspá fyrir árið 2025 gerir nú ráð fyrir um 17 þúsund tonna heildarslátrun í stað 18 þúsund tonna áður, en af því á um 7.800 tonnum að verða slátrað á fjórða ársfjórðungi. Fyrir árið 2026 gerir félagið einnig ráð fyrir um 17 þúsund tonna framleiðslu.
Langtímamarkmið um 30 þúsund tonna árlega framleiðslu stendur þó óbreytt og byggir meðal annars á núverandi lífmassa og áformuðum rekstrar- og kostnaðarbótum, auk þess sem félagið bíður samþykktar á 10 þúsund tonna leyfi í Seyðisfirði.