Við mælum mikið með þessu viðtali við Sigurð Má Einarsson um hvernig tókst með samstilltu átaki að reisa við stórlaxastofninn í vatnakerfi Þverá-Kjarrá í Borgarfirði.
Einn lykilþátta er sú bylting sem varð um aldamótin þegar maðkveiði var bönnuð og einungis var leyft að veiða á flugu. Það tryggir að hægt er að sleppa laxi ómeiddum svo hann geti tekið þátt í hrygningu. Árangurinn er afgerandi.
Ábyrg og sjálfbær umgengni um auðlindir náttúrunnar á ávallt að vera ófrávíkjanleg regla.
Í viðtalinu segir Sigurður Már meðal annars:
„Við höfum verið samfelldar rannsóknir í Þverá/Kjarrá frá 1996 og ég byrjaði að skoða vatnasvæðið 1989. Við höfum verið með árlegar rannsóknir á seiðum og hitamælingar og höfum lagt áherslu á að nota aðferðir fiskifræðinnar til að skilja og sjá hvað er að gerast ár frá ári í vatnakerfinu. Frá upphafi höfum við verið að skoða hvernig sjálfbærni hefur verið best háttað. Það höfum við verið að gera með því að fylgjast með hrygningu og þeirri nýliðun sem kemur undan þessum hrygningarstofnum sem eru misstórir hverju sinni. Þetta höfum við mælt í áratugi og sjáum að það eru skýr tengsl á milli hrygningar og nýliðunar á svæðinu. En við höfum líka séð að það er mikill breytileiki í þessu sambandi,“
…
Í skýrslu sem Sigurður Már og samstarfsfólk hefur birt árlega kemur fram að hrygningarmarkmið í Þverá og Kjarrá ætti að vera 5,5 hrogn á hvern fermetra í ánni. „Þetta er frjósöm á og hún á að þola mikla hrygningu. Ég var að skoða tímabilið frá 1978 og þá kemur í ljós að hún hefur aðeins tvisvar sinnum verið yfir þessu hrygningarmarkmiði. Hins vegar hefur hún sex sinnum verið milli svokallaðra aðgerðamarka og hrygningarmarkmiða en mjög mörg ár hefur hún verið milli varúðarmarkmiða og aðgerðamarkmiða. Það hefur gerst þrjátíu sinnum á þessu tímabili. Varúðarmarkmið liggja nálægt því að maður vilji hreinlega loka ánni. Auðvitað er þetta fiskifræðital en flest af þessum árum þegar hrygning hefur verið með lakara móti eru á milli áranna 1980 og 2000 þegar við vorum með þessa nýtingu sem einkenndist af maðkveiði og lítilli fluguveiði og allt var drepið. Það var líka óhagstætt umhverfi á þessum árum og víða um land hrundu stofnar í byrjun níunda áratugarins og það var mjög slök laxveiði á þessum árum, mjög víða. Það sem var sérstaklega alvarlegt á þessum tíma var að bæði stórlaxa- og smálaxastofnar hrundu. Stórlaxinn náði varla að jafna sig eftir þetta. Við höfðum svo miklar áhyggjur af stórlaxinum á Veiðimálastofnun gömlu, að við sendum út tilmæli til allra veiðimanna árið 2000 að sleppa öllum stórlaxi.“
Úr 1100 stórlöxum í innan við 200
Hann tekur sem dæmi að í Þverá og Kjarrá, árið 1979 þá veiddust ellefu hundruð stórlaxar í ánni. Upp úr þessu hrakaði stórlaxinum mikið. Árin 2005 til 2011 var góðæri í vatnakerfinu en þau ár veiddust ekki nema 100 til 200 stórlaxar á ári.Fyrri viðmiðunarár sýna að stórlax var um helmingur aflans, en þegar komið var fram til áranna 2005 til 2010 þá var hlutfall stórlax komið niður fyrir tíu prósent af veiði.
Árið 2000 tóku þáverandi leigutakar ákvörðun um að fara alfarið í fluguveiði og settu skyldusleppingu á stórlax á þessum tíma samkvæmt ráðgjöf frá Veiðimálastofnun. „Smá saman hefur þetta verið að virka og nú í dag er stórlax orðinn þrjátíu prósent af veiðinni. Til dæmis í fyrra í Þverá og Kjarrá þá veiddust fimm hundruð stórlaxar. Þannig að gamli stórlaxastofninn er að koma aftur,“ segir Sigurður Már.
Stórlaxastofninn er viðkvæmur þegar kemur að erfðasamsetningu. Það er í raun bara eitt gen sem ræður arfgerðinni. „Ég er alveg klár á því að á árunum 1980 til 2000 þá hafi oft verið veitt meira úr ánni en hafi verið æskilegt.“
…Er hægt að segja með nokkurri vissu og sanngirni að með tilmælum frá ykkur um sleppingu á stórlaxi, hafi tekist að bjarga honum?
„Já. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga að það gerðist. Veiða og sleppa er að mínu mati mjög góð aðferð til þess að vernda hluta af stofninum, eins og stórlaxinn. Halda samt áfram ánni í nýtingu og tryggja að verðmætin skili sér til veiðiréttarhafa. Veiða og sleppa á smálaxi skiptir máli líka en ég er reyndar á því að það eigi alveg að vera hægt að drepa eitthvað af smálaxi í ánum en bara að það sé svona í takti við sjálfbæra nýtingu í þeim á hverjum tíma.“
Ef ekki hefði verið farið í þetta átak varðandi stórlax í Borgarfirði, hefði hann mögulega horfið?
„Ég tel að það hafi verið stórkostlega mikil hætta á því að stórlaxinn hefði ekki náð sér. Við erum sem betur fer komin í það núna að hann er orðinn um þriðjungur af aflanum. Það er góðs viti.“
Fleiri jákvæðir þættir fylgja veiða og sleppa. Í þeim ám þar sem þetta fyrirkomulag er stundað bendir Sigurður á að fleiri laxar lifi af veturinn og komi aftur í ána eftir að hafa gengið í sjó. Hann segir líka að það geti munað verulega um þessa endurkomulaxa þegar erfitt ár kemur í kjölfar góðs árs. Þá skili sér minna af laxi en búist hafi verið við en endurkomulaxar geta þá verið enn dýrmætari. Þeir fiskar eru oftast á bilinu 65 til 70 sentímetrar.
…
Hann segir að almennt megi sjá bata á Vesturlandinu en ekki verður hægt að sjá fyrr en í lok sumars hversu mikill hann er.
Það má ljóst vera af svörum Sigurðar Más að fullyrðingar sem fram koma reglulega um að veiða og sleppa sé ekki að virka eru í besta falli hæpnar. Þar má horfa til þess sem hann rakti hér að ofan varðandi stórlaxinn. Það er í besta falli hæpið að taka einn þátt út úr flókinni jöfnu og segja hann marktækan fyrir heildina. Alveg sama hversu oft það er sagt.