Hér má hlusta á viðtal við Jón Kaldal, talsmann okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, um þá afleitu ákvörðun atvinnuvegaráðherra að opna Mjóafjörð á Austfjörðum fyrir opnu sjókvíaeldi á laxi.

Það kemur ekki fram í viðtalinu en fyrir um tuttugu árum lauk með hörmungum tilraun Samherja með sjókvíaeldi á laxi í Mjóafirði. Marglyttur fylltu fjörðinn og drápu allan eldislaxinn í sjókvíunum.

Þessi atburður markaði endalok sjókvíaeldis Samherja en fyrirtækið hefur verið með allt eldi sitt, á laxi og bleikju, á landi eftir þetta og er nú að reisa gríðarlega umfangmikla laxeldisstöð á Reykjanesi