Við hvetjum bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar til að endurskoða þessa ákvörðun og láta meta umhverfisáhrif af stórauknu eldi í Arnarfirði. Við minnum á að síðastliðið vor hellti Arnarlax eiturefnum í sjóinn í Arnarfirði þegar fyrirtækið var að berjast við lúsafár í laxeldiskvíum sinum. Eðli málsins samkvæmt er losun eiturefna í opnar sjókvíar ávísun á umhverfismengun langt út fyrir kvíarnar.
Í Noregi er staðan sú að rækjustofninn hefur hrunið þar sem lúsaeitur hefur verið notað.
„Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gerir engar athugasemdir við áform Arnarlax hf. um aukið eldi í Arnarfirði. Fyrirtækið hyggst auka framleiðsluna í firðinum um 4.500 tonn. Skipulags- mannvirkjanefnd tók fyrir umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar um það hvort framleiðsluaukningin skuli sæta mati á umhverfisáhrifum og niðurstaða nefndarinnar var að umhverfismat þyrfti að fara fram og vísaði nefndin í lög um umhverfismat við afgreiðslu sína.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar tók fyrir fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar bæjarins á fundi í gær. Þar lagði Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, fram breytingartillögu þess efnis að bæjarstjórn gerir engar athugasemdir við stækkunaráform Arnarlax þar sem þau eru innan viðmiða burðarþolsmats Hafrannsóknastofnunar og í samræmi við nýtingaráætlun Arnarfjarðar.“
Breytingartillagan var samþykkt.