Hvort vill Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tryggja vernd innviða landsins í þágu þjóðaröryggis eða aflétta verndinni í þágu þriggja fyrirtæka?

Þetta er spurning sem utanríkisráðherra hlýtur að svara. Á sama tíma og ríkisstjórn hennar hefur lagt fram frumvarp sem fellir burt helgunarsvæði fjarskiptasæstrengja innanlands, gegn eindregnum vilja Neyðarlínunnar, Fjarskiptastofu og fjarskiptafyrirtækja talar hún um mikilvægi þess að tryggja öryggi sömu innviða.

Þetta sagði utanríkisráðherra á ársfundi Samorku í dag:

„Ef árás yrði gerð á Ísland þá verður það að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar eins og við gjarnan sjáum fyrir okkur sem fyrstu árás, heldur atlaga að innviðum, orkumannvirkjum, neðansjávarstrengjum, ratsjárstöðvum, internetinu og okkar tengingu við umheiminn.“

Ef frumvarp ríkisstjórnarinnar nær fram að ganga hefur, öryggi íbúa á Vestfjörðum ,,verið sett skör lægra“ en annarra Íslendinga eins og segir í umsögn Neyðarlínunnar um frumvarpið. Og það í þágu þriggja sjókvíaeldisfyrirtækja sem vilja setja akkeri fyrir sjókvíar niður innan helgunarsvæða sæstrengjanna.

Sérhagsmunagæslan gerist varla grimmari.

Frétt RÚV um ræðu utanríkisráðherra