Verð á eldislaxi er í sögulegu lágmarki og hefur verið í nokkra mánuði. Ástandið er svo slæmt að framleiðslukostnaðurinn í Noregi er töluvert hærri en það verð sem fæst á mörkuðum.
Framleiðslukostnaðurinn á Íslandi er verulega meiri en í Noregi svo tapið hér er enn brattara. Við þetta bætist gríðarlega mikill dauði í sjókvíunum á Vestfjörðum og enn meiri á Austfjörðum. Þar hefur þörungablómi þurrkað upp súrefni í fjörðum og drepið eldislaxinn í hrikalegu magni í vor og sumar.
Þetta er hroðalegur iðnaður. Fer hræðilega með umhverfið, villta lífríkið og eldisdýrin sín.
Fagmiðillinn Intrafish fjallar um verðhrunið. (Áskriftar krafist)
Salmon prices are tumbling to their lowest levels in years as an oversupplied market runs headlong into soft seasonal demand, leaving producers and exporters facing mounting losses.
“It’s a really disappointing market,” one exporter told IntraFish, reporting losses of NOK 2–5 (€0.17–€0.43/$0.19–$0.48) per kilogram on this week’s sales.
Next week will likely be even worse, he said, adding that multiple weight categories are expected to fall into the NOK 40s (€3.47–€4.34/$3.71–$4.64) — prices not seen in several years.
Intrafish hefur einnig fjallað um vandræði norsku sjókvíaeldisfyrirtækjanna á Kínamarkaði.
Mögulega gæti markaðurinn í Kína verið að lokast vegna óviðunandi gæða. Ekki mun verðið hressast við það. Laxalús að finnast endurtekið í sendingum þangað, sem kínversk yfirvöld hafa enga þolinmæði fyrir.