Verð á eldislaxi hefur hrunið undanfarna tólf mánuði. Er staðan orðin þannig að verðið er lægra en kostar að framleiða laxinn.

Kílóverðið í þessari viku er 5,66 evrur samkvæmt meðfylgjandi frétt, en var í sömu viku í fyrra 10,53 evrur (vika 21, 2024).

Mikið offramboð er af eldislaxi og í hönd fer tími þar sem verðið er alltaf sögulega lágt vegna aukins framboðs yfir sumarmánuðina.

Fyrir liggur að framleiðslukostnaður per kíló á eldislaxi er mun hærri á Íslandi en í Noregi. Tap sjókvíeldisfyrirtækin mun því aðeins fara vaxandi á komandi mánuðum en þau hafa þegar birt eldrauðar tölur fyrir fyrsta fjórðung ársins.

Fróðlegt verður að sjá hvort verð á eldislaxi muni nokkurn tímann ná aftur fyrri hæðum. Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu og í Bandaríkjunum réðust fyrir nokkrum árum í húsleitir og fleiri harðar aðgerðir gegn sjókvíaeldisrisunum vegna rökstudds gruns um verðsamráð þeirra um langt árabil.

Fyrirtækin gerðu mjög dýra sátt við samkeppnisyfirvöld fyrir vestan en málum er ólokið af hálfu samkeppnisyfirvalda í Evrópu. Frumúrskurðir hafa hins vegar verið eindregið gegn sjókvíaeldfisfyrirtækjunum. Á grundvelli þeirra eru hafin málferli í ýmsum löndum. Þar á meðal í Bretlandi þar sem samtök neytenda krefjast 382 milljón punda (68 milljarðar króna) í skaðabætur og samtök matvöruverslana gera kröfu um 675 milljón punda (119 milljarðar króna) í skaðabætur.

Salmon prices plunge to new low, falling below production cost for many farmers

“The mood is poor. Prices continue to fall. There are lots of fish on offer. Loads of large salmon. It’s not easy,” an exporter told SalmonBusiness.

“Fish is being offered at around NOK 65.00 ($6.37/€5.66) delivered today. But few are biting. So the purchase price needs to go even lower to match it. The large fish are a real problem. It’s not simple. There’s a lot of big, really big fish. It’s overflowing with everything now,” he added, sounding frustrated. …

“Many producers can’t operate at that price. There’s a lot of biomass and plenty of harvest-ready fish. Slaughtering won’t pause now. There will be steady pressure ahead. We’re likely to see a development we haven’t seen in years. The exchange rate isn’t helping either. The dollar has weakened—that’s not positive either. A lot of factors are hitting at once. It’s now dipping below production cost for more and more players.”

“Harvesting of the new generation is happening earlier this year than last. And there’s still quite a bit of fish in cold storage from the autumn.”

All sources today are reporting the same message about falling prices. …