Við tökum undir með baráttusystkinum okkar á Seyðisfirði þar sem tekist er á um lögmæti Lagareldisfrumvarps Viðreisnar:
Í morgun áttum við fund með umhverfis og samgöngunefnd Alþingis þar sem breytingar á frumvarpi um vitalög og leiðamerkingar liggur á þeirra borði!
Okkar góða fólk sem hefur sökkt sér á bólakaf í opinber gögn tók rúnt á Austfjörðum og Vestjörðum með nefndinni og það sem blasir við er að 12 af 17 útgefinna rekstrarleyfa eru innan ljósgeira vita, öðru nafni inná því sem á að heita örugg siglingarleið.
Þessi stjórnsýsla er ekki boðleg og þetta verður að laga. Það er okkar krafa og við vitum að þjóðin sem hefur lýst sig andvíga því að þessir sérhagsmunir stýri för eru með okkur í liði.
Stöndum saman og fylgjumst með þeim lagabreytingum sem eru núna inní þinginu sem munu hafa mjög mikið um framtíð sjókvíaeldis á Íslandi að segja.
Vísir ræddi við Katrínu Oddsdóttur og fjallar um kerfisbundna lögleysi sjókvíaeldisins.
Forsvarsmenn félagsins VÁ! – félags um um vernd fjarðar mættu í dag á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Tilefnið er frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Fulltrúar VÁ! bentu á að um 70 prósent af núverandi sjókvíaeldi er ólögmætt vegna þess að starfsemi þess gengur í berhögg við núgildandi lög um vitamál.
Katrín Oddsdóttir lögmaður segir, í samtali við Vísi, að borðleggjandi sé að nýtt frumvarp taki ekki á þessu mikilvæga máli. Hún vitnar í forsvarsmenn að austan sem segjast einfaldlega vera að biðja um að landslög gildi fyrir alla og að innlend og erlend löggjöf verði virt.
…
Að sögn Katrínar fór VÁ! einnig fram á að nýtt frumvarp tryggði að hættumat siglinga yrði framkvæmt af Vegagerðinni fyrir öll fiskeldissvæði, en ekki útvistað til fiskeldisfélaganna sjálfra eins og verði hefur. …
„Fyrir liggja áhættumöt sem eru afar mismunandi eftir því hvort það voru stjórnvöld eða fiskeldisfyrirtækin sem kölluðu eftir mötunum, sem sýnir skýrt hversu alvarlegt það er að heimila fyrirtækjunum sjálfum að stýra slíkum mikilvægum úttektum, enda eru þau hagsmunaaðilar,“ segir Sigfinnur.
…
Félagsmenn VÁ! sögðust hafa fundið fyrir skilningi og áhuga nefndarmanna á að koma þessum málum í lag, enda full ástæða til.
„Ég man eftir viðtali við Sigurð Líndal lagaprófessor í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum þar sem hann sagði að sama hvaða góðu lög yrðu samþykkt í landinu þá væru þau í raun tilgangslaus ef ekki yrði farið eftir þeim. Það eru því okkar skilaboð til yfirvalda á byrja á því að fara eftir núgildandi lögum þegar það kemur að sjókvíaeldi,“ segir Sigfinnur.