Óskiljanlegt er að nokkur sjávarútvegsfyrirtæki hafi tekið ákvörðun um að fjárfesta í sjókvíeldi. Íslenskur sjávarútvegur hvílir á heilbrigði hafsins og sjálfbærri nýtingu villtra nytjastofna.

Sjókvíaeldi á laxi er á hinum endanum. Mengar og eyðileggur firði þar sem eru meðal annars mikilvægustu uppeldisstöðvar villtra nytjastofna.

Við þetta má svo bæta að margra milljarða króna tap útgerðarfélaganna af fjárfestingum í þessum óskylda og skaðlega rekstri er ígildi margra ára hækkunar á veiðigjöldum.

Í umfjöllun Vísis segir ennfremur:

Óinnleyst tap Ísfélagsins og Síldarvinnslunnar af fjárfestingum í fiskeldisfélögum hleypur á fleiri milljörðum króna. Félögin hafa hins vegar ákveðið að bókfæra virði fjárfestinganna miklum mun hærra en ef miðað væri við markaðsverð.

Síldarvinnslan festi kaup á 34,2 prósenta hlut í Arctic Fish Holding AS, sem er eini eigandi Arctic fish ehf., sem er eitt af stærstu laxeldisfyrirtækjum á Íslandi og rekur eldisstöðvar á Vestfjörðum, árið 2022.

Bókfært verð nánast tvöfalt hærra en markaðsverð
Kaupverðið fyrir hlutunum, sem voru alls 10.899.684, var 1.089.968.400 norskra króna, sem samsvarar um 13,66 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Markaðsvirði félagsins er 1,737 milljarðar norskra króna og hlutur Síldarvinnslunnar því 594 milljónir norskra króna virði. Það gerir markaðsvirði hluta Síldarvinnslunnar því rétt tæplega 7,5 milljarðar króna. Það gerir um 6,16 milljarða króna óinnleyst tap á tæpum þremur árum.

Í ársreikningi Síldarvinnslunnar fyrir síðasta ár segir aftur á móti að í lok síðasta árs hafi bókfært verð hlutar félagsins í Arctic fish numið 111 milljónum Bandaríkjadala, sem félagið gerir upp í. Það gerir 14,1 milljarð króna.

Svipuð saga af Ísfélaginu og Kaldvík
Svipaða sögu er að segja af fjárfestingu Ísfélagsins í Kaldvík árið 2023. Þá keypti Ísfélagið 16 prósenta hlut í Ice Fish Farm AS fyrir um 8,6 milljarða króna. Verðið í viðskiptunum miðaði við 43 norskar krónur á hlut, sem var tæplega sjötíu prósentum yfir markaðsgengi þá. Nafni félagsins var síðar breytt í Kaldvík.

Gengi félagsins stendur nú í 16,5 norskum krónum á hlut, sem er tæplega 62 prósentum lægra en þegar Ísfélagið keypti í félaginu. Markaðsvirði þess er nú 27,5 milljarðar króna og hlutar Ísfélagsins því 4,4 milljarða króna. Það gerir óinnleyst tap Ísfélagsins um 4,2 milljarða á tveimur árum. …