Í tilefni af umræðum talsmanns IWF og ritstjóra BB á Bylgjunni í gær er rétt að rifja upp að það sem streymir beint frá sjókvíunum í hafið var kallað „klóakrennsli“ á heimasíðu Landssamband fiskeldisstöðva. Sú grein var reyndar fjarlægð eftir við bentum á hana sem heimild, en áður en það gerðist tókum við skjáskotið sem hér fylgir.

Þá er rétt að geta þess að Umhverfisstofnun Noregs segir frárennslið frá hverju tonni á laxi í sjókvíum jafnast á við „klóakrennsli“ frá 16 manns, en Landssamband fiskeldissöðva sagði það vera á við 8 manns.

Í upptalninguna í grein sjókvíaeldismanna vantar lúsaeitur, lyf, örplast og þungmálma úr ásætuvörnunum sem þeir húða netapokana með.