Arctic Fish hefur birt uppgjör fyrir 2025. Árið var skelfilegt hjá félaginu. Það tapaði 1.536.000 króna á árinu sem gerir 128 milljónir krónur á mánuði eða 4,2 milljónir hvern einasta dag.
Í uppgjörinu kemur fram að félagið borgaði 104,5 kr (0,7 EUR) með hverju einasta kílói sem félagið framleiddi. Það gerir 731 krónu með hverjum sjö kílóa laxi sem lifði af til slátrunar.
Reksturinn 2025 gekk svo illa að Arctic Fish var í sumarbyrjun tilneytt til að auka hlutafé um fimm milljarða króna til að koma í veg fyrir að lánveitendur félagsins gjaldfelldu lán.