Hér er umsögn okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum um hin afleitu drög atvinnuvegaráðherra að framvarpi til laga um lagareldi.
Texti frumvarpsins er fullur af innihalslausum orðum: „leitast við“, „skylda til“ og „bera ábyrgð“ en engin viðurlög er við brotum ef rekstrarleyfishafar hunsa þessar meintu skyldum og ábyrgð. Sem sagt tóm froða.
Þessi drög er stórhættuleg afturför frá núverandi meingallaðri löggjöf um fiskeldi.
Við vekjum sérstaka athygli á kaflanum um áhættumat erfðablöndunar í umsögninni. Við leggjum til að það verði ekki á ábyrgð Hafrannsóknastofnunar heldur verði það unnið af til þess bærum óháðum sérfræðingum. Er það að gefnu tilefni.







