Klukkan 18 í dag 18. febrúar ræða þessir herramenn á myndinni við Græna borðið á Samstöðinni afleiðingar sjókvíaeldis á laxi fyrir umhverfið, lífríkið og mannlífið. Eðlilega koma drög atvinnuvegaráðherra að nýju frumvarpi um lagareldi mjög við sögu.

Réttsælis frá efri röð: Gylfi Ólafsson, varaþingmaður Viðreisnar og forseti bæjarstjórnar í Ísafjarðarbæ, Páll Ásgeir Ásgeirsson stjórnandi þáttarins, Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Arnar Pálsson erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands.

Þátturinn er frumsýndur klukkan 18 en verður eftir það bæði endursýndur og aðgengilegur á vefsvæði Samstöðvarinnar.

Rétt er að færa hér til bókar að talskonum sjókvíaeldisiðnaðarins, Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur frá SFS og Vigdísi Häsler frá Hringborði hafs og fiskeldis, var boðið í þáttinn en þær sáu sér ekki fært að mæta.