Af þessu viðtali við umhverfisráðherra í Morgunblaðinu sýnist okkur að hann hafi líklega ekki heyrt af Weser dómnum frá 2015 um bann við að leyfa ef líkur eru á hnignun vatnshlots, fjórum sænskum dómum frá 2017 um að fasa út sjókvíaeldi og írskum dómi frá 2024 sem ógilt einmitt leyfi Mowi fyrir sjókvíaeldi við suðvestanvert Írland.
Ráðherranum er að ákveðnu leyti vorkun því þeir sem eiga að vera honum til ráðgjafar í opinberum stofnunum og ráðuneytum hafa verið fullkomlega meðvitundarlausir árum saman um raunverulega þýðingu laga um stjórn vatnamála/vatnatilskipunarinnar.
Nú er runninn upp aðlögunartími sem verður þeim afar sársaukafullur – og mögulega ráðherrum ríkisstjórnarinnar líka ef þeir kjósa að gerast merkisberar þekkingarleysis fyrri tíma fremur en koma skikki á þetta fúsk.
Þetta er rétt að byrja.
