Vísir fjallar um málstofuna sem fer fram í Lögbergi með Paul Larsson afbrotafræðingi og prófessor við Lögregluháskólann í Osló.
Sjókvíaeldisiðnaðurinn er eina stóriðja Noregs sem hefur heimild til að losa allan úrgang sem fellur til við starfsemina óhreinsaðan í umhverfið.
Skýringarnar á því af hverju staðan er þessi segir Larsson vera að lög og reglugerðir í Noregi hafi verið hannaðar til að greiða götu iðnaðarins, ekki til að vernda umhverfið.
Eftirlitið er að mestu leyti „innra eftirlit“ fyrirtækjanna sjálfra á sama tíma og opinberar eftirlitsstofnanir glíma við fjárskort og eru undirmannaðar.
Beint streymi verður á Vísi frá fundinum með Larsson. Hefst klukkan 17.
„Spurningin er hvernig við gátum látið þetta gerast,“ segir Paul Larsson, afbrotafræðingur og prófessor við Lögregluháskólann í Osló, um stöðu sjókvíaeldisiðnaðarins í Noregi. …
Hann bendir á að árið 2018 hafi losun fosfórs frá sjókvíaeldi verið 45 sinnum meiri en frá öllum öðrum norskum iðnaði samanlagt, á sama tíma hafi losun köfnunarefnis mælst 24 sinnum meiri en hjá öðrum iðnaði samanlagt. Afleiðingarnar eru firðir sem glími við súrefnisskort og þéttar þörungabreiður.
Lög sniðin að þörfum iðnaðarins
Skýringarnar á því af hverju staðan er þessi segir Larsson vera að lög og reglugerðir í Noregi hafi verið hannaðar til að greiða götu iðnaðarins, ekki til að vernda umhverfið. Eftirlitið er að mestu leyti „innra eftirlit“ fyrirtækjanna sjálfra á sama tíma og opinberar eftirlitsstofnanir glíma við fjárskort og eru undirmannaðar.„Í Noregi eru til dæmis um 230 seiðaeldisstöðvar. Norska blaðið Dagbladet afhjúpaði á sínum tíma að eftirlitsaðilar hafi aldrei heimsótt þriðjung þeirra. Þegar fulltrúar eftirlitsins mæta loksins í eftirlitsferð hafa fundist frávik í níu af hverjum tíu tilfellum.“
Larsson bendir á að iðnaðurinn sé nánast vaxinn ríkinu yfir höfuð. „Fyrirtækin reka öfluga hagsmunagæslu og má segja að þau stýri nánast stjórnmálunum. Þau taka gagnrýni illa og fara hart í eftirlitsaðila.“
Spurning er hvort þetta sé „kúreka-menning“ eða úthugsuð hegðun bætir Larsson við.
Umhverfisglæpir færast inn á radarinn
Síðastliðið haust tók Efnahagsbrotadeild Noregs (Ökokrim) umhverfisglæpi í fyrsta skipti inn í árlega áhættumatsskýrslu sína og nefndi sérstaklega brotastarfsemi fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi á laxi við Noreg.…
Að sögn Jóns Kaldals, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, sem verður fundarstjóri á eftir, hefur þessi þáttur brotastarfsemi notið vaxandi athygli og hefur Europol, löggæslustofnun Evrópusambandsins, vakið athygli á að skipulagðir glæpir gegn umhverfinu geti verið jafn ábatasamir og viðskipti með fíkniefni.