Laxalús er svo mikið vandamál í íslensku sjókvíaeldi að Fisksjúkdómanefnd Matvælastofnunar hefur á tveimur síðustu fundum sínum bókað harðorða athugasemdir við stöðuna.

Í Bretlandi hefur Tesco tekið eldislax frá færeyska sjókvíaeldisfyrirtækinu Bakkafrosti úr sölu vegna meðferðar á lúsasmituðum eldislaxi.

Umfjöllun RÚV:

Breska matvælakeðjan Tesco ákvað að hætta tímabundið að taka við eldislaxi úr kvíum Bakkafrosts í stöð þess í Loch Torridon í Skotlandi eftir uppljóstrun dýraverndarsamtaka um að vart hafi orðið við lúsasmitaðan lax í búri sem átti að vera í hvíld. Keðjan segir smitið mikið áhyggjuefni og krefst rannsóknar.

…

Bresku dýraverndunarsamtökin Animal Equality, sem birtu myndskeið af smitaða laxinum, segja ákvæði dýraverndarlaga og fleiri reglna hafa verið brotin og lögðu fram formlega kvörtun í ágúst.

Það sé bæði ómannúðlegt og ólöglegt að loka fisk inni í búrum sem eiga að vera í hvíld, segja talsmenn þess.

Bakkafrost er að stærstum hluta í eigu opinbera lífeyrissjóðsins Folketrygdfondet, er skráð á verðbréfamarkaði í Noregi og þarf því að sýna mikið gagnsæi í rekstri. Bakkafrost hefur átt í nokkru fjárhagsbasli á síðustu mánuðum, ekki síst vegna starfseminnar í Skotlandi.

Ársframleiðsla fór úr 5.411 tonnum niður í 5.286 tonn. Yfir 400 manns starfa í 45 starfsstöðvum Bakkafrosts í Skotlandi.

Tap af rekstrinum þar nam 191 milljón danskra króna á þriðja ársfjórðungi 2025 og heildarekstrarhagnaður fyrirtækisins var 22 milljónir danskra króna samanborið við 173 milljónir á sama tíma í fyrra.