Míla, Ljósleiðarinn, Fjarskiptastofa og Neyðarlínan leggjast af mikilli hörku gegn tillögu í fjarskiptafrumvarpi innviðaráðherra um að heimila botnfestingar sjókvíaeldiskvía innan helgunarsvæða sæstrengja innanlands. Þetta kemur fram í afar athyglisverðri fréttaskýringu sem Ólafur Pálsson blaðamaður Morgunblaðsins birtir í miðopnu blaðsins í dag.

Neyðarlínan bendir í umsögn sinni á að fjarskiptastrengir eru „lífæð“ íbúa á Vestfjörðum og að ef þessi heimild verður að lögum verði „öryggi almenngins þar sett skör lægra en annarra landsmanna“.

Sami harði tónn er í umsögnum Mílu, Ljósleiðarans og Fjarskiptastofu. Enda rík ástæða til. Ef þessir strengir fara í sundur munu heilu byggðarlögin missa allt samband sitt við umheiminn og ekki einu sinni geta hringt í 112.

Samkvæmt núgildandi lögum eru botnfestingar sjókvíaeldiskvía bannaðar innan helgunarsvæða allra fjarskiptasæsstrengja. Þannig var ákvæðið líka þegar drög að frumvarpinu voru kynnt í haust fyrir fjarskiptafyrirtækjunum og öðrum hagaðilum.

Eitthvað hefur svo gerst í millitíðinni frá kynningu á drögunum og þar til frumvarpi var dreift til þingmanna. Þá var flestum að óvörum komið inn ákvæði um afhelgun innanlandsstrengja og það án nokkurs rökstuðnings.

Hvað gerðist? Í umsögnunum er að finna vísbendingu um svarið við því. Meðal þeirra er erindi frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) sem fagna mjög breytingunni.

Í umsögn Mílu kemur fram að þegar leitað hafi verið skýringa hjá innviðaráðuneytið á þessu nýja ákvæði hafi borist þau svör að engin dæmi eru um að botnfestingar sjókvía hafi valdið tjóni á fjarskiptastrengjum. Á móti bendir Míla á að ástæðan fyrir því sé líklega að þær eru einmitt bannaðar nálægt sæstrengjum samkvæmt núgildandi lögum.

Þetta furðulega mál sýnir í hnotskurn hversu djúpt sérhagsmunagæslan ristir í stjórnkerfi landsins í þágu örfárra fyrirtækja innan SFS.

Í þetta skiptið á með lagabreytingu að setja í hættu „lífæð“ Vestfirðinga, eins og Neyðarlínan orðar til þess að þrjú sjókvíaeldisfyrirtæki geti sökkt akkerum sínum nærri fjarskiptastrengjum sem tengja íbúa við 112 og umheiminn allan.

Framsögumaður frumvarpsins fyrir hönd ríkisstjórnarinnar er Sigurður Helgi Pálmason, Flokki fólksins. Hann hlýtur að hafa frumkvæði að því innan umhverfis- og samgöngu­nefndar að fallið verði frá þessari stórvarasömu breytingu.

Að botnfestingar sjókvía geti losnað er alþekkt áhætta. Hér er af handahófi eitt þekkt dæmi.