Svona er þessi skaðlegi iðnaður og mun aldrei breytast á meðan þeir sem hagnast á honum halda áfram að nota netapoka sem hanga á flotgrindum.

Arctic Fish hefur ekki hugmynd hvað mikið af fiski hefur sloppið úr þessum sjókvíum.

Í frétt Vísis er vitnað í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að tvö göt hafi uppgötvast á kví Arctic Seafarm í Kvígindis­dal í Pat­reks­firði. Í kvínni eru 72.522 fiskar. Hvort gat um sig var 20×30 sentí­metrar að stærð.

„Í til­kynningunni segir að búið sé að loka götunum. Verið er að skoða allar kvíar á svæðinu. Segir fé­lagið að götin hafi verið til­kynnt til Fiski­stofu og Mat­væla­stofnunar eins og reglur kveði á um og við­bragðs­á­ætlanir virkjaðar.

Þá segir í til­kynningunni að þrjú slysa­sleppingar­net verði lögð í dag sem dregin verða á morgun með eftir­lits­fólki frá Fiski­stofu. 72.522 fiskar séu í kvínni.

Meðal­þyngd hvers þeirra sé um sex kíló og vegur fjöldinn saman­lagt um 440. Byrjað var að vinna fisk úr kvínni og var síðast farið með fisk í vinnslu úr henni 8.ágúst, að því er segir í til­kynningu frá Arctic Seafarm.“