Umfangsmikli dæling lyfjafóðurs í sjókvíar er að hefjast á Vestfjörðum vegna útbreidds smits fiskilúsar á eldislaxi og eldisseiðum. Er þetta tíunda árið í röð sem þarf að eitra fyrir lús fyrir vestan frá því að sérfræðingar Matvælastofnunar (MAST) fullyrtu að lús yrði aldrei álíka vandamál í sjókvíaeldi hér við land og annars staðar.
Reyndust þeir hafa ævintýralega rangt fyrir sér.
Lyfjafóðri verður dælt í sjókvíar á sex eldissvæðum, tveimur í Dýrafirði og fjórum í Arnarfirði.
Í umsögn Fisksjúkdómanefndar kemur fram að nefndin „telur mikilvægt að bregðast sem fyrst við vaxandi lúsatölum“. Leggur nefndin jafnfram áherslu á að mikilvægi þess „að fóðrun sé með þeim hætti að botnfall verði sem minnst m.t.t. lífríkis á botni.“
Rík ástæða er fyrir þessum varnaðarorðum því virka efnið í lyfjum og lúsaeitri, það sem drepur lúsina, hefur sömu áhrif á marflær, rækjur og önnur villt skeldýr í fjörðunum. Berst eitrið þar að auki í aðrar sjávarlífverur og fugla.
Notkun skordýraeiturs og lyfjafóðurs hefur verið margfalt meiri í sjókvíaeldi hér við land heldur en sjókvíeldisfyrirtækin kynntu við upphaf eldisins.
Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa lýst yfir áhyggjum yfir áhrifum þessarar ógnarmiklu fjölgun fiskilúsar í lífríki fjarðanna á ungviði villtra nytjategunda, þorsk, ufsa og ýsu, en ólíkt laxalúsinni hoppar fiskilúsin milli tegunda.
Alls hefur MAST heimilað notkun eiturefna eða lyfjafóðurs 84 sinnum frá 2017, þar af 34 sinnum aðeins í Arnarfirði, þar sem er einmitt verið að ráðast í umfangsmikla lyfjadreifingu í opinn sjó í þessari umferð.
Staðan í Arnarfirði er alvarleg því útbreiðsla fiski- og laxalúsar hefur verið þar viðvarandi mikið vandamál þrátt fyrir að í firðinum sé mun minna magn af eldislaxi en leyfi er fyrir að hafa þar í sjókvíum.
Framleiðsluþakið fyrir fjörðinn, sem nú er 20.000 tonn samkvæmt áhættumati erfðablöndunar, eða ellefu til tólf milljónir eldislaxa. Aldrei hafa verið fleiri en um sjö milljónir eldislaxa í Arnarfirði en lúsin valdið þar látlaust búsifjum.
Myndin sem hér fylgir er frá því þegar ástandið varð óviðráðanlegt fyrir vestan vegna lúsar haustið 2023 með þeim afleiðingum að gríðarlegur fjöldi laxa drapst eða þurfti að farga vegna þess hversu slæmir lúsaáverkarnir voru á þeim.
Rétt er að taka fram að dauði eldislaxa í sjókvíum við Ísland hefur aukist á hverju ári frá hryllingsárinu 2023.
Mikill dauði eldisdýra er þannig beinlínis fyrirséður hluti af sjókvíaeldi á laxi en ekki tilfallandi slys