Ástæðan fyrir þessu hrikalega ástandi þjóðvegakerfisins á Vestfjörðum og Vesturlandi eru fyrst og fremst gegndarlausir þungaflutningar með eldislax en ónýtir vegir skapa stórkostlega slysahættu fyrir alla almenna umferð.

Á þetta hefur svæðisstjóri Vegagerðarinnar bent í fyrri fréttum um ástandið.

Sjókvíaeldisfyritækin greiða engan tekjuskatt í ríkissjóð en þaðan er þörf á mörgum milljörðum króna á ári til að laga vegina sem þau eyðileggja.
Hver þungaflutningsbíll slítur vegum á við 10.000 fólksbíla.

Kostnaður við holufyllingar á Vestfjörðum hefur fimmfaldast á síðustu árum, en á sama tímabili hefur framleiðsla á sjókvíaeldislaxi þrettánfaldast á svæðinu.

Í frétt RÚV segir meðal annars:

Vegagerðin hefur sett þungatakmarkanir á tólf vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem veður hefur valdið miklum skemmdum á slitlagi.

…Þeir bílar sem þessar aðgerðir snerta helst eru bílar sem flytja fisk milli landshluta. Takmörk á farmþunga þýði að fara þarf fleiri ferðir.

Kristinn segir að Breiðafjarðarferjan Baldur gæti hjálpað til með að koma bílum suður fram hjá takmörkunarsvæðunum. Mögulega verði bætt við ferðum.