Á síðasta ári fengu eigendur veiðihlunninda, sem eru að miklum meirihluta bændur í sveitum Íslands, samtals rúmlega 3,5 milljarð króna beint til sín í tekjur af þessum hlunnindum í frjálsum viðskiptum á markaði. Sama ár nam úthlutun hins opinbera Fiskeldissjóðs til sveitarfélaga tæplega 500 milljón króna en greiðslur úr sjóðnum eru skilyrtar til fyrirfram ákveðinna verkefna.

Hér fyrir neðan má sjá samanburð milli kjördæma landsins á leigutekjum veiðihlunninda sem renna beint til landeigenda og bænda og á úthlutun Fiskeldissjóðs til sveitarfélaga.

Úthlutun úr Fiskeldissjóði 2025 má sjá á vefsvæði Stjórnarráðsins. Mat á leigutekjum veiðihlunninda er unnið af Íslenska náttúruruverndarsjóðnum í samráði við Landssamband veiðifélaga með skýrslu Hagfræðistofnunar frá 2018 til hliðsjónar.

Matið er varfærið og sýnir aðeins beinar leigutekjur. Aðrar tekjur, svo sem vegna starfsfólks í veiðihúsum, leiðsögumanna, iðnaðar- og vélamanna í héraði er önnur stærð sem er ekki höfð hér með. Hér eru ekki heldur með kostnaðarsamar framkvæmdir í formi fiskivega, vatnsmiðlana og veiðihúsa, sem eru um 100 talsins á Íslandi. Þar af eru um 30 rekin sem hótel með fullri þjónustu í fámennum sveitum og skapa þar störf.

Greiðslur fyrir veiðileyfi hætta að berast eða þarf að endurgreiða um leið og stöðva þarf veiði, eins og gerist þegar reynt er að grípa til hreinsunaraðgerða vegna sleppilaxa með rekkköfun, ádrátti neta eða öðrum aðferðum.

Í lagareldisrumvarpi atvinnuvegaráðherra er hvergi gefinn gaumur að því hvernig bæta skal þetta gríðarlega tjón, sem getur eftir atvikum verið tímabundið eða jafnvel varanlegt.

Norðvesturkjördæmi

Fiskeldissjóður
Bolungarvík – 43.250.000 kr.
Ísafjarðabær – 76.660.000 kr.
Strandabyggð – 8.690.000 kr.
Súðavík – 61.270.000 kr
Vesturbyggð – 95.840.000 kr.
Samtals: 285.710 kr

Leigutekjur veiðihlunninda
Hvalfjarðarsveit/Faxaflói – 165.000.000
Borgarfjörður – 580.000.000
Mýrar og sunnanvert Snæfellsnes – 350.000.000
Breiðafjörður/Dalir – 290.000.000
Djúpið og Vestfirðir – 80.000.000
Vestur- og Austur Húnavatnssýsla – 570.000.000
Skagafjörður – 85.000.000
Samtals: 2.120.000 kr

Mismunur: 1.834.290.000 krónur

Norðausturkjördæmi

Fiskeldissjóður
Fjarðabyggð -134.520.000 kr.
Múlaþing – 44.840.000 kr.
Samtals: 179.360.000 kr

Leigutekjur veiðihlunninda
Aðaldalur og Austfirðir – 590.000.000.
Samtals: 590.000.000 kr

Mismunur: 410.640.000 kr.

Suðurkjördæmi

Fiskeldissjóður 0

Leigutekjur veiðihlunninda
Suðurland 260.000.000 kr
Samtals: 260.000.000

Mismunur: 260.000.000 kr

Höfuðborgarsvæðið

Fiskeldissjóður 0

Leigutekjur veiðihlunninda
Reykjavík og Mosfellsbær (Elliðaár, Korpa, Leirvogsá) 75.000.000 kr
Samtals: 75.000.000 kr

Mismunur: 75.000.000 kr

Við þessar tölur bætast leigutekjur veiðihlunninda af sjógengnum silungi og sjóbirtingi á landsvísu.
(Laxalús úr sjókvíum ógnar báðum tegundum)
Samtals: um 500.000.000

LANDIÐ ALLT

Fiskeldissjóður samtals 465.070.000 kr.
Leigutekjur veiðihlunninda 3.545.000.000 kr.

Mismunur: 3.079.930.000 kr.

Þegar dæmið er reiknað til enda tapar þjóðin alltaf og óhjákvæmilega. Mest fólkið í sveitum landsins.