Kaldvík, sjókvíaeldisfyrirtækið á Austfjörðum, lét 1,2 milljónir eldislaxa drepast hjá sér á síðasta ársfjórðungi 2024.
Þetta ár byrjar svo jafn hörmulega og það síðasta endaði hjá þeim með dauða mörg hundruð þúsunda eldislaxa í sjókvíunum í austfirsku fjörðunum. Orsakirnar sníkjudýr, vetrarsár og almennt ömurlegur aðbúnaður eldisdýranna.
Ástandið á Vestfjörðum var líka hræðilegt.
Dauði og förgun eldislaxa í sjókvíeldi við Ísland í janúar var sá versti frá dýravelferðarmartröðinni í október 2023 þegar laxalúsin fékk að leika lausum hala í sjókvíum Arctic Fish og Arnarlax með þeim afleiðingum að 1,7 milljón eldislaxa drapst eða var fargað vegna þess að þeir voru of illa særðir til að von væru að þeir myndu lifa.
Í janúar sem leið var þessi tala 815 þúsund eldislaxar á landinu öllu.
Sjókvíaeldi á laxi er óboðleg aðferð við matvælaframleiðslu.
Intrafish (Áskriftar krafist):
Icelandic salmon farmer Kaldvik posted an operating loss in the fourth quarter of 2024, citing a one-off biomass write-down of €23.1 million ($24.2 million) caused by higher mortalities and a lower-than-planned smolt release.
Kaldvik experienced difficulties in its sea operation during the period related to transporting smolt and winter wounds caused by lower-than-normal temperatures during the quarter, it said in its latest financial report.