Enn heldur áfram að síga á ógæfuhliðina hjá sjókvíaeldisfyrirtækinu Kaldvík. Fyrirtækið hefur gefið út að veruleg hætta sé á því að það nái ekki að uppfylla lánakvaðir í samningum við lánadrottna á fyrsta fjórðungi eða síðar á árinu 2026.

Sama stað var hjá Kaldvík í fyrravor og þurfti því fyrtækið að ráðast í hlutafjáraukningu sem endaði í að hluthafar lögðu 6,6 milljarða króna til viðbótar í félagið. Það hefur ekki dugað enda gríðarlegur taprekstur á síðasta ári.

Kaldvík hefur látið um það bil einn af hverjum tveimur eldislöxum drepast hjá sér í sjókvíunum undanfarin tvö ár.

Matvælastofnun sektaði fyrirtækið fyrir brot á dýravelferðarlöggjöfinni í fyrra og vísað enn alvarlegra máli til lögreglu. Er sú rannsókn enn í gangi.

Viðskiptablaðið fjallar um afkomuviðvörun Kaldvíkur:

Hlutabréfaverð Kaldvíkur hefur lækkað um 7% í norsku kauphöllinni í dag eftir að laxeldisfyrirtækið sendi frá sér neikvæða afkomuviðvörun á föstudaginn.

Það tengist meðal annars snemmbærri slátrun og verðlækkunum á mörkuðum. Vegna þessa kunni að vera veruleg hætta á því að fyrirtækið nái ekki að uppfylla allar lánakvaðir í samningum við lánadrottna á fyrsta fjórðungi eða síðar á árinu 2026.

Kaldvík segist hafa hafið viðræður við lánsveitendur um tilslökun á lánsskilmálum.

Kaldvík lauk við ríflega 40 milljarða króna endurfjármögnun síðasta sumar. Hún fól í sér 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára og 6,6 milljarða króna hlutafjáraukningu.