Næsti leikmaður Fjårdakaupa sem við kynnum til leiks er Sveinn Salmon. Hann veit að fjármunir frá rekstri geta verið einsog vatn, þeir finna sér sína leiðir um glufur skattkerfisins.
Fjårdakaup – sjókvíaeldisspilið þar sem þjóðin tapar, er nýtt borðspil í boði okkar hjá Íslenska nátturuverndarsjóðnum og NASF.
Þriðji leikmaður Fjårdakaupa verður kynntur von bráðar.
Frekari upplýsingar fyrir áhugasama:
Úr grein Fiskifrétta: „Finn Kinserdal hjá Norska hagfræðiskólanum segir að fljótlega eftir að laxaskatturinn hafi verið kynntur hafi fjöldi skattasérfræðinga í þjónustu stóru eldisfyrirtækjanna kannað leiðir til að minnka áhrifin. Meðal annars hafi fyrirtækjum verið skipt upp þannig að þau fyrirtækjanna sem greiða eigi skattinn séu látin skila minni hagnaði. Þá sé laxinn látinn vera skemur í sjó en áður því við þann tíma sé skatturinn miðaður.
„Þau gætu líka hafa aðlagað verðið því eldisfyrirtækin selja lax til sinna eigin fyrirtækja sem síðan selja fiskinn áfram,“ rekur Kinserdal áfram í NRK. Stjórnvöld hafi einfaldlega vanmetið aðlögunarhæfni stóru fyrirtækjanna.“
Fréttaskýring norska ríkisútvarpsins um hvernig skattasniðganga er hluti af viðskiptamódeli sjókvíaeldisfyrirtækjanna
Allir þjónustubátar í sjókvíaeldi við Ísland, utan einn, eru skráðir í öðrum löndum og eru með erlendar áhafnir.
Meirihluti starfsfólks kemur að utan og er á lágmarkslaunum.
Það gjald sem fyrirtækin greiða fyrir afnot af hafsvæðum í eigu þjóðarinnar stendur ekki undir kostnaði hins opinbera af þessari starfsemi. Háar upphæðir í erlendum gjaldeyri renna úr landi fyrir fóður, búnað, ráðgjöf og lán til móðurfélaganna.
Þegar norsk stjórnvöld gerðu breytingar á skattkerfi landsins 2023 flutti stjórnarformaður Måsøval, hins norska móðurfélags sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur, nánast allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu á nafn þá tæplega 18 ára dóttur sinnar, sem flutti heimilsfang sitt til Sviss nokkrum mánuðum fyrr. Áður hafði hinn aðaleigandi fyrirtækisins, bróðir sjórnarformannsins, fært heimilisfang sitt til Sviss. Sja frétt