Liðstyrkurinn gerist ekki öflugri en þetta!

Það er gaman að segja frá því að við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum fjármögnuðum fyrsta hluta lögfræðikostnaðar landeigandans á Sandeyri á Snæfjallaströnd í baráttunni gegn því að Arctic Sea Farm (Arctic Fish) kæmist upp með að troða sjókvíum alveg upp við sjávarjörð hans.

Aegis, náttúruverndarsjóður Bjarkar, tók síðan við af ómetanlegum rausnarskap. Aegis kemur líka heldur betur við sögu í fleiri málum sem eru í gangi til varnar umhverfi og lífríki Íslands! ❤️

Umfjöllun Vísis um málshöfðun Bjarkar og Rósalíu:

Björk Guðmundsdóttir stofnaði hafverndarsamtökin Aegis árið 2023 og hefur í gegnum samtökin stutt mótmælendur gegn sjókvíaeldi fjárhagslega og greitt lögfræðikostnað. Samtökin eru sjálf fjármögnuð með öllum hagnaði sem hlýst af laginu Oral sem Björk gerði ásamt tónlistarkonunni spænsku Rosalíu. …

Sigrún Perla Gísladóttir talsmaður Aegis, náttúruverndarsamtaka Bjarka Guðmundsdóttur, segir Arctic Seafarm hafa komið upp sjókvíum við Sandeyri á Snæfjallaströnd innan svokallaðra netalaga landeiganda. Netalög eru það hafsvæði undan strönd tiltekinnar jarðar sem tilheyrir henni. Ítrekuð mótmæli landeigandans hafi engan hljómgrunn hlotið hjá bæjaryfirvöldum og því hefur hann stefnt íslenska ríkinu. Málið verður þingfest í næstu viku.

Perla segir Björk hafa langað að koma málinu fyrir dómstóla sem hefur reynst hagsmunasamtökum erfitt í gegnum árin.

„Það hefur enginn gert á Íslandi því félagasamtök og náttúruverndarsamtök hafa ekki aðgang að dómstólum, þeim er ítrekað vísað frá,“ segir hún.

Stefnur á grundvelli meints ólöglegs sjókvíaeldis hafi farið fyrir dómstóla í Noregi en íslenska dómskerfið sé ekki eins aðgengilegt og margir vilji halda, sérstaklega fyrir náttúruverndarsamtök. Málum sé ítrekað vísað frá á grundvelli þess að samtökin hafi enga lögvarða hagsmuni af málinu.

Landeigandinn krefst þess að strandvæðaskipulag Vestfjarða frá árinu 2022 sem veitti leyfi fyrir kvíunum verði ógilt og sömuleiðis að bótaskylda ríkisins gagnvart sér verði viðurkennd.