Í tilefni af fréttum um brottflutningi Arctic Fish á störfum frá Þingeyri er rétt að rifja upp að eigendur sjókvíeldisfyrirtækisins á Austfjörðum, sem nú heitir Kaldvík, ætluðu fyrir fáeinum árum að flytja sambærileg störf alla leið til Noregs.
Eina ástæðan fyrir því að horfið var frá þeim áætlunum var að stjórnendur fyrirtækisins áttuðu sig á því að störf í Noregi pössuðu ekki saman við söguna sem þeir voru að selja bláeygum Íslendingum um hvað þeim þætti vænt um brothættar byggðir á Íslandi.
Þá lygasögu hafa þeir notað fyrir austan og vestan til að koma leyfum fyrir þessari stórskaðlegu starfsemi í höfn.
Þegar þau verða öll tryggð munu þeir fara með störfin þangað sem hluthöfum fyrirtækjanna hentar og engum öðrum en þeim.
Til viðbótar þessu þá fækkar ört störfum þar sem mannshöndin kemur nálægt verkum í sjókvíeldinu. Innan skamms mun gervigreindin sjá um fóðrunina í fjarstýrðum prömmum. Sjá hér til dæmis þessa frétt Salmon Business.
Frétt Vísis frá 2018:
Stefnt er að því að allri fóðrun í kvíum Fiskeldis Austfjarða hf. verði fjarstýrt frá Noregi innan tíðar. Þetta kemur fram í viðtali við Roar Myrhe, framkvæmdastjóra norska eldisfyrirtækisins Midt-Norsk Havbruk, í tímaritinu Intrafish í síðustu viku. Norska fyrirtækið á 62 prósenta hlut í Fiskeldi Austfjarða. …
„Það er verið að nota nýjustu tækni við að fóðra fiskinn sem best þannig að við náum bæði betri vexti og betri nýtingu á fóðrinu,“ segir Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða. Aðspurður segir Guðmundur að ekki sé gert ráð fyrir fækkun starfsfólks vegna þessara breytinga.
„Ekki hjá okkur, nei, af því að við erum enn að stækka.“ …
Ef litið er til þróunar í sjávarútvegi hefur störfum í veiðum og vinnslu fækkað um helming á rúmum tveimur áratugum. Í skýrslu Hugins Freys Þorsteinssonar, sem unnin var fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, er fjallað um tæknibyltinguna sem skilað hefur mikilli hagræðingu og fækkun starfa í veiðum og vinnslu. Þannig hafi störf í veiðum og vinnslu verið 16.000 árið 1995 en hafi fækkað um helming og séu nú aðeins í kringum 8.000, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.
Aðspurður segist Huginn ekki þekkja nægilega til starfa í fiskeldi til að segja til um hvort sjálfvirkni geti leyst þau af hólmi, þótt sú þróun hafi vissulega orðið í sjávarútvegi. Þar hafi ný hátæknistörf orðið til í staðinn, segir Huginn og bendir á fyrirtækið Marel sem augljóst dæmi.