Þetta eru góðar fréttir! Löngu tímabært skref. Vel gert Svandís. Morgunblaðið greinir frá.
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að Laxaverndarstofnunin NASCO hafi verið stofnsett í Reykjavík árið 1984 í þeim tilgangi að stuðla að verndun, uppbyggingu og skynsamlegri nýtingu laxastofna í Norður Atlantshafi. Íslendingar drógu aðild sína að stofnuninni til baka í lok árs 2009 í kjölfar hruns íslenska bankakerfisins.
Núverandi meðlimir NASCO eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk (fyrir Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Kanada, Noregur og Rússland. Þar að auki eiga yfir 20 hagsmunasamtök áheyrnaraðild að NASCO.
„Ég tel mikilvægt, sem eitt af stofnríkjum NASCO, að við séum virk í umræðunni og gerum okkar besta til að efla enn frekar stöðu villtra laxastofna innan okkar vébanda,“ er haft eftir Svandísi í tilkinningunni.
„Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra greindi frá þeirri ætlun stjórnvalda að endurvekja aðild Íslands að Laxaverndunarstofnuninni (NASCO) í dag. Svandís greindi frá þessu á ráðstefnunni Salmon Summit sem haldin er í Reykjavík af Verndarsjóði villtra laxastofna (NASF).