„Stjórnvöld hafa skilað gjörsamlega auðu og nú verður hver og einn að grípa til aðgerða við sína á. Þetta er innrás, ekkert nema innrás og við áskiljum okkur þann rétt að verja ána á allan þann hátt sem við getum.“
Þetta segir Kristján Þorbjörnsson, formaður Veiðifélags Vatnsdalsár og hittir naglann beint á höfuðið.
Formaður Veiðifélags Vatnsdalsár segir stjórnvöld hafa skilað auðu í málum er varða sjókvíaeldi og verndun íslenska laxastofnsins. Niðurstöðu úr erfðarannsókn á löxum sem veiddust í Haukadalsá í síðustu viku er enn beðið.
Norskir kafarar sinntu í gær eftirliti í Haukadalsá fyrir Fiskistofu, en nokkrir eldislaxar hafa veiðst í ánni á undanförnum dögum. Einn lax, með einkenni eldislax, hefur veiðst í Vatnsdalsá í Húnaþingi og munu kafararnir beina spjótum sínum þangað í dag.
…Norskur laxakafari, sem rætt var við í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi, sagði viðbrögð Íslendinga langt frá því að vera nógu góð.
„Það eru bara forkastanleg vinnubrögð sem hafa viðgengist varðandi þetta allt saman. Talsmenn þessara innrásaraðila hafa talið öllum trú um að það sé engin hætta,“ segir Kristján.