„Ég tel að verðið í viðskiptunum sé allt of hátt … Með þessu tel ég að Heimsto AS, sé að hagnast með óeðlilegum hætti á kostnað annarra hluthafa Kaldvíkur. Um hafi verið að ræða sjálfsafgreiðsluviðskipti, en tveir af þeim þremur stjórnarmönnum sem greiddu atkvæði með viðskiptunum eru forstjóri Heimsto og fjármálastjóri.“

Þetta segir Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess, sem hefur ákveðið að segja sig úr stjórn laxeldisfyrirtækisins Kaldvíkur vegna ákvörðunar þriggja stjórnarmanna félagsins um að stefnt skuli að kaupum á öllu hlutafé í Mossa ehf. og Djúpskel ehf. og 33,3% hlutafjár Búlandstinds ehf.. Stjórnarmennirnir sitja beggja vegna borðsins í þessum viðskiptum.

Þessir snillingar finna ýmsar leiðir til að taka fjármuni út úr rekstrinum en barma sér mjög yfir að greiða gjald fyrir afnot af hafsvæðum í eigu þjóðarinnar, sem er þó alltof lágt, um leið og þeir skaða umhverfið, lífríkið og verðmæti annarra íbúa landsins.

Í frétt Viðskiptablaðsins segir ennfremur:

…Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess, hefur ákveðið að segja sig úr stjórn laxeldisfyrirtækisins Kaldvíkur vegna ákvörðunar þriggja stjórnarmanna félagsins þann 20. desember sl. um að stefnt skuli að kaupum á öllu hlutafé í Mossa ehf. og Djúpskel ehf. og 33,3% hlutafjár Búlandstinds ehf.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Aðalsteini sem barst rétt í þessu en Kaldvík tilkynnti rétt fyrir þrjúleytið í dag að hann hefði látið af stjórnarstörfum hjá félaginu. Skinney-Þinganes er næst stærsti einstaki hluthafi Kaldvíkur með 11,9% hlut í gegnum dótturfélagið Krossey ehf.

..Laxeldisfyrirtækið Kaldvík náði í síðasta mánuði óskuldbindandi samkomulagi um möguleg kaup upp á 190 milljónir norskra króna, eða um 2,3 milljarða króna, fyrir nokkrar lykileignir í virðiskeðju fiskeldisiðnaðarins á austurströnd Íslands, þar á meðal kaup á öllu hlutafé í Mossa ehf. og Djúpskel ehf. og 33,3% hlutafjár Búlandstinds ehf.

Seljendur eignanna eru Heimsto AS, sem er stærsti hluthafi Austurs ehf., sem á 55,29% í Kaldvík hf. og Ósnes, sem er í eigu Elísar Grétarssonar, framkvæmdastjóra Búlandstinds ehf. og Birgis Guðmundssonar.

Seljandi alls hlutafjár Mossa ehf. er Heimsto. Seljandi Djúpskeljar og 33% hlutafjár Búlandstinds er Ósval ehf., sem er fyrirtæki í eigu Heimsto að 53,6% leyti og Ósnes að 46,4% leyti.

„Ég tel að verðið í viðskiptunum sé allt of hátt. Ég geri einnig athugasemd við að stærsti hluti kaupverðsins sé greiddur með nýútgefnu hlutafé á genginu 27,6 pr. hlut meðan virtir greiningaraðilar meta að gengi félagsins eigi að vera á bilinu 35-41,“ segir Aðalsteinn. …