Skrifa undir!

Vísir fjallar um undirskriftasöfnunina:

Hátt í fimm þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Formaður félagasamtaka sem stendur fyrir söfnuninni segist vonast til þess að landsmenn skrifi undir og félagið fái umboð til að sýna stjórnvöldum að framkvæmdin fari gegn vilja landsmanna.

…Benedikta segir íbúa í Seyðisfirði hafa barist fyrir gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í fjögur ár. Hún segir samtökin koma fram fyrir meirihluta íbúa bæjarins. Þau hafi tekið þátt í öllu samráði sem þeim hefur staðið til boða að taka þátt í en það hafi ekki dugað. Ekki hafi verið hlustað á þau.

„Svo er þetta bara náttúra og lífríki Íslands sem er undir og okkur ber að vernda, en ekki afhenda á silfurfati til aðila sem vilja eyðileggja hana og græða heilmikla fjármuni á henni.“

Katrín Oddsdóttir lögmaður segir það skipta sig miklu máli að koma í veg fyrir að þessi framkvæmd verði að raunveruleika.

„Ég elska Seyðisfjörð og held að það skipti verulega miklu máli að fólk fái að taka ákvarðanir um sitt nærumhverfi sjálft. Ég held það sé ekkert hægt að segja fólkinu á Seyðisfirði að það eigi að fá sjókvíaeldi, hvort sem það vill það ekki ekki. Það er fráleitt.“

Benedikta segist þó bjartsýn á framhaldið, þó svo að málið sé komið í þetta ferli. Hún bendir á að fyrir kosningar hafi fulltrúar frá öllum flokkum sem nú sitja í ríkisstjórn, á fundi Landverndar, að þau myndu vilja stöðva þessa leyfisveitingu.

„Nú erum við því komin með þessa undirskriftasöfnun í gang og við viljum fá umboð landsmanna til að fara með það mál áfram og þá veit ég að þau geta gert það sem er rétt í þessu máli,“ segir Benedikta að lokum.