Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá og Miðfjarðará.
Samkvæmt öruggum heimildum okkar er eldislaxinn sem veiddist í Miðfjarðará úr öðru ótilkynntu stroki.
Aðal göngutími eldislaxa er í september og október. Þetta veitir ekki á gott
Í tilkynningu MAST segir m.a.:
Sameiginleg frétt Matvælastofnunar, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar um stöðu upprunagreininga laxa sem veiðst hafa.
Samtals hafa 22 laxar borist Hafrannsóknastofnun og sýni úr þeim verið send til erfðagreiningar. Af þessum eru sjö fiskar staðfestir eldislaxar og því 15 sem reyndust villtir. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá og Miðfjarðará. Tilkynningar hafa borist um sex laxa til viðbótar með eldiseinkenni.
Rakning stendur yfir á staðfestum eldislöxum og enn benda niðurstöður til sameiginlegs uppruna sex laxa úr Dýrafirði. Svo virðist sem einn staðfestur eldislax hafi annan uppruna og rannsókn hafin á uppruna þess fisks. Stofnanirnar þrjár starfa áfram saman að rannsókn málsins og veita upplýsingar þegar frekari niðurstöður liggja fyrir. …