„Hver lax sem veiðist í Laxá skapar um 300 þúsund krónur í beinar tekjur í héraði. Hrygnan sem liggur dauð í ólöglegu netunum í Gvendarbás veldur því meira tapi heldur en 120 þúsund krónurnar sem Norðurþing fékk fyrir söluna á netaveiðileyfunum 10,“ segir Jón Helgi Björnsson meðal annars í frétt Mbl sem hér fylgir.
Í fréttinni er lýst sorglegu sinnuleysi sveitarfélagsins og Fiskistofu af þessum netaveiðum þar sem ýmis lög eru þverbrotin, illa farið með fugla og fisk og meiri verðmætum fórnað fyrir minni.
Þrenn veiðilög voru brotin við netaveiðar í Gvendarbás við Húsavík í gær samkvæmt formanni veiðifélags Laxár í Aðaldal og líffræðingi.
Við blasti vægast sagt ömurleg sjón í Gvendarbási en í veiðinetum sem þar hafa verið lögð út í þeim tilgangi að veiða silung mátti sjá eitthvað allt annað. Í einu netinu voru þrír fuglar, tveir dauðir og einn nær dauða en lífi, og í öðru neti mátti sjá dauðan lax, en það er með öllu ólöglegt að veiða lax í net í sjó.
Þannig var aðkoman er Jón Helgi Björnsson, formaður veiðifélags Laxár í Aðaldal, kom að netunum en hann deildi upplifuninni og myndefni á Facebook-síðu sinni í dag.
…„Ég er búinn að vita af þessu lengi, að menn hafa verið í þessum veiðum, og þetta er í grunninn blóraveiði á laxi. Þetta hefur verið með leyfi Norðurþings áratugum saman þrátt fyrir að veiðifélögin hafi ítrekað sent sveitarfélaginu beiðni um að menn myndu hætta þessum veiðum,“ segir Jón Helgi í samtali við mbl.is.
Lítið hafi verið um svör við þeim beiðnum og ekkert um aðgerðir.
Laxastofnar í vandræðum um land allt
„Á meðan hafa þeir sem eru með árnar þurft að gjörbreyta allri sinni nálgun á náttúruna,“ segir hann. Hann nefnir þá að enginn lax sé drepinn lengur í vatnakerfi Laxár, hvorki í Mýrarkvísl, Reykjadalsá né Laxá.Þá hafi það ekki verið neitt leyndarmál að veiðin þar á svæðinu, og í raun um land allt, hafi dalað mjög frá því sem áður var. Jón Helgi segir að þrátt fyrir að árið í ár hafi verið nokkuð gott sé ekki um að ræða neina metveiði.
„Stofnarnir allir eru í vandræðum og þess vegna er enn sárara að sveitarfélagið sé að leyfa veiði í tíu net.“ Jón Helgi bætir enn fremur við að á flestum stöðum á landinu séu slíkar veiðar löngu hættar.
Hann harmar einnig áhugaleysi sveitarfélagsins á verðmætasköpuninni sem vatnakerfi Laxár skapar. Áætlar hann að um 5.000 veiðimenn veiði þar á ári hverju og setur hann verðmætasköpun hvers og eins lax sem veiddur er í vatnakerfinu upp á áhugaverðan hátt.
„Hver lax sem veiðist í Laxá skapar um 300 þúsund krónur í beinar tekjur í héraði. Hrygnan sem liggur dauð í ólöglegu netunum í Gvendarbás veldur því meira tapi heldur en 120 þúsund krónurnar sem Norðurþing fékk fyrir söluna á netaveiðileyfunum 10,“ skrifar hann í færslu sinni.
Í samtali við mbl.is segir hann síðan að með þessari tölu sé aðeins tekið mið af tekjum af og fyrir leiðsögumenn, veiðihús og tekjum til bænda en ekki óbeinum tekjum sem menn hafi af því þegar veiðimenn komi og nýti sér þá margs kyns þjónustu sem í boði er á svæðinu. …