Þessi mynd úr nýbirtri skýrslu norska Vísindaráðsins um laxinn sýnir glöggt hversu miklum skaða sjókvíeldi á laxi veldur á villtum laxastofnum. Efst er laxalús, eldislax sem sleppur er þar á eftir ásamt loftslagsbreytingum og svo eru ýmsar sýkingar úr sjókvíunum ofarlega á listanum.

Í skýrslunni segir að eftir mörg samfelld ár hnignunar hafi ástand norska villta laxins hafi aldrei verið jafn slæmt og það er nú.

Sjókvíaeldi á iðnaðarskala hefur verið stundað um árabil í Noregi.

Varað var við þessum afleiðingum fyrir mörgum árum en Norðmenn kusu að loka augum og eyrum frekar en að bregðast við.

Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi ef við ætlum að flytja inn þá afstöðu líka, rétt einsog við fluttum inn þessa úreltu og skaðlegu tækni við matvælaframleiðslu. Okkar einstaki villti laxastofn mun hverfa.