Við trúum því ekki frekar en baráttusystkini okkar hjá SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi að atvinnuvegaráðherra sé að íhuga að opna Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi.

Í annarri skoðanakönnun en þarna er vitnað til kemur fram að aðeins 9% stuðningsfólks Viðreisnar er jákvætt í garð sjókvíaeldis, um níu sinnum fleiri eða 80% eru á móti þessari skaðlegu starfsemi, 11% hvorki né.

Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra væri að fara í stríð við eigið stuðningsfólk um land allt með því að greiða götu sjókvíaeldis í Eyjafjörð.

RÚV ræðir við Hörpu Barkardóttur, í samtökunum SUNN:

Yfirlýsing atvinnuvegaráðherra nýverið um að til standi að meta burðarþol í Eyjafirði fyrir sjókvíaeldi kom félögum SUNN, samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, verulega á óvart. Harpa Barkardóttir er í stjórn samtakanna.

„Mig langar varla til þess að trúa því að hún hafi talað með þessum hætti. Sérstaklega þegar nýtt frumvarp um lagareldi er í bígerð og við eigum eftir að sjá hvernig það kemur út.“

Harpa segir skoðanakönnun frá því í haust sýna með skýrum hætti hver afstaða íbúa sé til sjókvíaeldis. Þar hafi 60% svarenda verið neikvæðir, um 30% hlutlausir og 10% verið jákvæðir.

Aðeins fimm ár síðan Hafró taldi tilefni til að banna sjókvíaeldi í friðinum
Harpa segir umræðuna hafa verið mikla fyrir um fimm árum. Þá hafi verið skorað á ráðherra sem óskaði eftir áliti Hafrannsóknastofnunar.

„Niðurstaða þeirra var að þeir teldu vera tilefni til að banna fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði, bæði vegna áhrifa á villta laxastofna og á lífríki í firðinum.“

…Samtökin segja sjókvíaeldi ekki síður hafa áhrif á markaðssetningu. Þeir ferðamenn sem hingað sæki séu meðvitaðir og neikvætt orðspor fari af sjókvíaeldi. Starfsemin gæti því orðið til þess að sverta ímynd Eyjafjarðar í ferðaþjónustu.

„Það eru áform um stórfellt laxeldi á landi í Eyjafirði nú þegar, 20 þúsund tonn, getum við ekki sagt að það sé nóg í bili?“