Sjókvíaeldi á laxi er í raun gríðarleg framleiðsla á örplasti sem kvarnast alla daga frá búnaðinum en hann er nánast allur gerður úr plastefnum: flothringirnir, netin og margir kílómetrar af fóðurrörum.
Norsk baráttusystkin okkar vekja athygli á þessari frét fagmiðisins iLaks um notkun á endurunnu næloni í netapokana. Netin eru m.a. framleidd af Hampiðjunni, og notuð af Grieg Seafood. Redd Villaksne bendir á að þó plastið sem notað er í sjókvíaeldinu sé endurunnið er mengunin sem berst í firðina sú sama.