Sagan um laxaskattinn.

Þetta er fyrisögn á grein eftir hinn þekkta norska blaðamann og rithöfund Morten Strøksnes. Þegar hann deildi greininni á Facebooksíðu sinn gerði hann það með þessum orðum (þýtt úr norsku):

„Skrifaði um „laxaskattinn“ fyrir Dag og Tid um helgina.

Laxahagsmunagæslan hefur í tæpan áratug rekið harðar herferðir gegn „laxaskattinum“. Einn armur þeirrar baráttu til að sleppa við skattinn birtist í því sem ég tel vera magnaðasta dæmi Noregssögunnar um það sem í bandarískum stjórnmálum er kallað „astroturfing“ (gervigrasrót). Það felst í því að valdamiklir og peningasterkir sérhagsmunaaðilar reyna skipulega að skapa þá tálsýn að að baki kröfum þeirra standi breið og almenn grasrótarhreyfing.

Málflutningurinn um afleiðingarnar var oft á tíðum hysterískur. Í raun hafa mörg fyrirtæki enn ekki greitt eina einustu krónu í laxaskatt, og ríkissjóður hefur einungis fengið mola (fyrirtækin komust hjá skattinum með skattskipulagningu). Þorri almennings í Noregi telur skattinn réttmætan og sanngjarnan, en stjórnmálamennirnir virðast engu að síður vera að fasa hann út eftir að Miðflokkurinn (Sp) snerist í málinu. Það er gert í stað þess að loka smugunum. Þetta er vandræðalegt.“

Allt hljómar þetta sorglega kunnuglega.

Greinina má lesa í Dag & Tid (Áskriftar krafist)