Sjávarútvegsritstjórn Morgunblaðsins birtir merkilegt viðtal í 200 mílum. Rætt er við Michelle Lorraine Valliant, sem hefur undanfarin ár stundað rannsóknir á lífríki sjávar á Vestfjörðum. Nýjar rannsóknir hennar sýna að ungviði þorsktegunda leitar í kalkþörungabreiður í fjörðunum. Michelle bendir á að þetta eru viðkvæm svæði sem geta ekki náð sér aftur á strik ef þau skemmast.
Á sama tíma eru stjórnvöld að heimila stórfelldan vöxt í sjókvíaeldi á laxi þar sem mengunin fellur til botns og malbikar botninn með þykku lagi af fóðurleyfum og skít. Þar þrífst svo nánast ekkert líf.
Sigurður Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar, varaði einmitt á sínum tíma við að uppeldisstöðvar þorsksins í Djúpinu gætu verið í hættu ef menn færu illa að ráði sínu í sjókvíaeldinu.
Í Morgunblaðinu segir meðal annars:
„Rannsóknir sínar gerði Michelle í fjörðum sem ganga inn af Ísafjarðardjúpi, sumarið 2019 og aftur sumarið 2021, en tímabilið frá júlí til september er sá tími ársins sem svokölluð 0-grúppu-þorskseiði (þ.e. þorskseiði á fyrsta ári) leita til botns. Bæði kafaði hún niður að kalkþörungabreiðunum sem þar er að finna, til að framkvæma talningu, og notaði einnig staðbundinn myndavélabúnað til að telja fiska jafnt innan um breiðurnar og á aðlægum sand- og malarbotni.
Reyndist svæðið vera iðandi af lífi og passar það við eldri kenningar, en Michelle segir að fram til þessa hafi tiltölulega fáar rannsóknir verið gerðar á hlutverki kalkþörungabreiða sem uppvaxtarsvæða fiskseiða. Þá sýndi samanburðurinn við svæði með sand- og malarbotni að ungviði þorsktegunda sækir í kalkþörungabreiðurnar umfram önnur svæði.
Að sögn Michelle er full þörf á að hvetja til betri umræðu á milli vísindasamfélags, sjávarútvegs og sjávarbyggða um hlutverk og verndun kalkþörungabreiða. „Vísindasamfélagið þarf að miðla betur því sem rannsóknir kenna okkur um lífríki sjávar og taka þátt í mótun betri aðferða til að nýta auðlindir hafsins. Grunar mig að sumir geri sér t.d. enga grein fyrir því hlutverki sem vistkerfi í fjörðum þjónar í uppvexti ungviðis þorsktegunda,“ útskýrir hún. „Ættu rannsóknir á ástandi og hlutverki kalkþörungabreiða að vera hluti af ákvarðanatöku bæði hvað varðar uppgröft kalkþörungs og hvort ráðlegt sé að koma fyrir mannvirkjum á vaxtarsvæðum kóralþörunga.“