Virtasti fiskifræðingur þjóðarinnar, Sigurður Már Einarsson, stígur fram í nýjasta tölublaði Skessuhorns og varar við óheftu sjókvíaeldi á eldislaxi sem gæti, ef illa fer, valdið „óbætanlegum skaða á íslenskum laxastofnum.“

Við deilum hér frétt Morgunblaðsins en þeim sem vilja lesa allt viðtalið er bent á að Skessuhorn er selt í lausasölu.

„Illu heilli var þessi norski stofn leyfður á Íslandi, þar koma peningalegir hagsmunir til því það var búið að kynbæta hann í Noregi í yfir 20 ár. Það hefði verið æskilegra að nota íslenska stofna en menn greinilega þoldu ekki að bíða eftir því,“ segir Sigurður Már meðal annars í viðtalinu.

Í umfjöllun Morgunblaðsins segir ennfremur:

… Sigurður hefur í fjörutíu ár unnið við rannsóknir á laxfiskum á vegum Veiðimálastofnunar og síðar Hafrannsóknastofnunar. Sigurður lét af störfum í árslok síðasta árs og hafði þá stýrt útibúi þessara rannsókna á Vesturlandi með aðsetur í Borgarnesi. Útibúið sjálft hefur verið á Hvanneyri í yfir tuttugu ár og starfsstöð Sigurðar því verið þar.

…Í yfirgripsmiklu viðtali sem Skessuhorn tók við Sigurð Má er ferill hans rakinn. Það vekur þó sérstaka athygli að Sigurður Már er ákveðinn í afstöðu til sjókvíaeldis við Íslandsstrendur. Hann er hættur og því frjáls eins og fuglinn. Þá kann að vera að menn geti tjáð sig frjálslegar. Í inngangi viðtalsins við Sigurð segir. „Hann tekur vara við óheftu sjókvíaeldi sem gæti, ef illa fer, valdið óbætanlegum skaða á íslenskum laxastofnum.“

Síðar í viðtalinu segir Sigurður Már það persónulega skoðun sína að náttúran eigi að njóta vafans og því sé hann andvígur sjókvíaeldi í þeirri mynd sem það sé nú stundað.