Myndin sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vilja ekki að þið sjáið er á dagskrá RÚV næstkomandi sunnudag, 24. maí.

Hjálpið okkur að láta það berast sem víðast, takk!

Morgunblaðið fjallar um bréfaskriftir SFS:

Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi (SFS) hafa sent Ríkisútvarpinu erindi …

Í upphafi bréfsins er tekið fram að erindið feli ekki í sér kröfu um að myndin verði ekki sýnd. Lúta athugasemdir SFS að því hvernig staðið verður að kynningu og umgjörð sýningarinnar …

Var handrit kvikmyndarinnar unnið af Jóni Kaldal sem hefur verið talsmaður IWF og tekið virkan þátt í opinberri baráttu gegn fiskeldi á Íslandi. Leikstýrði hann einnig myndinni.

Dreift með skipulögðum hætti fyrir alþingiskosningar 2024:

„Jafnframt liggur fyrir að myndinni var dreift með skipulögðum hætti í aðdraganda alþingiskosninga árið 2024, ásamt pallborðsumræðum víða um land, í þeim tilgangi að hafa áhrif á opinbera stefnumótun og stjórnmálaumræðu um fiskeldi. Efnið er framleitt af aðilum með yfirlýsta hagsmuni og skýra afstöðu til þess samfélagsmáls sem umfjöllunin beinist að,“ segir í bréfinu.
Telur SFS því mikilvægt að áhorfendur séu upplýstir með skýrum og gagnsæjum hætti um uppruna efnisins, fjármögnun þess og tengsl framleiðenda við hagsmunabaráttu gegn fiskeldi.

Gera kröfur í tengslum við sýningu myndarinnar
Í lok bréfsins koma fram kröfur SFS til RÚV í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar.

Kröfurnar eru eftirfarandi:

1. Að í kynningu á myndinni og við upphaf sýningar komi skýrt fram hverjir standi að framleiðslu hennar og fjármögnun, þar á meðal að myndin sé framleidd af samtökum sem hafa yfirlýsta stefnu og hagsmuni í umræðu um fiskeldi á Íslandi.

2. Að Ríkisútvarpið tryggi að umfjöllun um fiskeldi í dagskrá þess uppfylli kröfur um jafnræði og fjölbreytni sjónarmiða, meðal annars með því að tryggja sambærilegt rými fyrir umfjöllun um sjónarmið þeirra samfélaga, fyrirtækja, sérfræðinga og atvinnugreina sem tengjast fiskeldi og starfsemi þess.

3. Að sérstaklega verði hugað að því að áhorfendur geti með skýrum hætti greint á milli ritstýrðs fréttaefnis annars vegar og hins vegar efnis sem unnið er af hagsmunaaðilum í tengslum við pólitíska og samfélagslega hagsmunabaráttu.