Dav­íð Lúther Sig­urðs­son, stjórn­ar­mað­ur í HSÍ, hefur sagt af sér stjórn­ar­mennsku vegna styrkt­ar­samn­ings sambandsins við Arn­ar­lax. Hann var yf­ir mark­aðs- og kynn­ing­ar­mál­um í stjórninni en fékk ekki að vita af samn­ing­um við Arn­ar­lax fyrr en greint var frá hon­um í fjöl­miðl­um.

I viðtali við Heimildina segir hann að samvisku sinnar vegna hafi hann ekki getað setið áfram í stjórn HSÍ.

Davíð stendur með umhverfi og lífríki Íslands.

Í umfjöllun Heimildarinnar segir m.a.:

…Styrktarsamningur Arnarlax og HSÍ hefur vakið mikla athygli og sagði Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, meðal annars að hann væri „hneyksli“ og tónlistar- og laxveiðimaðurinn Bubbi Morthens sagði að landsliðið, sem oft er talað um sem „strákana okkar“, væri nú „strákarnir þeirra“ og vísað til Arnarlax.

Í samstarfinu felst meðal annars að Arnarlax verður með auglýsingu á landsliðsbúningum Íslands, líkt og fram kemur á heimasíðu HSÍ: „HSÍ og Arnarlax hafa undirritað samkomulag þess efnis að Arnarlax verði einn af bakhjörlum HSÍ. Frá og með HM kvenna sem hefst í næstu viku í Noregi, Svíþjóð og Danmörku mun Arnarlax hafa sitt vörumerki á baki allra keppnistreyja landsliða Íslands í handbolta.“ …

Davíð Lúther segir að hann hafi hætt vegna þess að honum hafi gramist að vera ekki látinn vita að HSÍ ætlaði sér að þiggja peninga frá Arnarlaxi. Hann segir að þetta hafi verið ákveðið á fundi þann 6. nóvember sem hann komst ekki á. „Ég hætti um leið og ég frétti að það hefði verið ákveðið að semja við Arnarlax,“ segir hann í samtali við Heimildina. Davíð var auk þess yfir markaðs- og kynningarmálum í stjórninni en fékk samt ekki að vita um eða eiga aðkomu að samningnum við Arnarlax.

Davíð segir að hann sé laxveiðimaður og að hann styðji náttúruverndarsamtökin Icelandic Wildlife Fund en þau hafa það yfirlýsta markmið að berjast gegn laxeldi í sjókvíum. Í tölvupósti sem Davíð sendi til formanns HSÍ, Guðmundar B. Ólafssonar, og framkvæmdastjórans Róberts Geirs Gíslasonar, sagðist hann ekki geta setið áfram í stjórninni samvisku sinnar vegna. „Vil hér tilkynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dagsins. […] Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera samkvæmur sjàlfum mér, mótmæli àfram laxeldi í sjó og styð og styrki IWF.“

Tölvupóstur Davíðs Lúthers til formanns HSÍ:

Vil hér tilkynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dagsins.

Vont var að heyra þetta í gegnum Messenger og í símtölum frá fólki sem ég bæði þekki og þekki ekki neitt.

Róbert sagði mér að þetta hafi verið samþykkt þann 6.nóvember á fundi sem ég komst ekki á. Ég las fundargerðina sama dag og eina sem stóð var d. Styrktaraðilar RG kynnti stöðu styrktaraðila.

Ég á erfitt með að trúa því að það hafi ekki verið rökræður á þessum fundi vegna þessa máls og bjóst ég því við að þegar eldfim mál koma upp að hringt er í stjórnarmann sem er formaður markaðs og kynningarmála ef hann kemst ekki á fund til að bera undir eða jafnvel að segja að minnsta kosti frá því að þetta hafi verið samþykkt þar sem þetta klárlega fellur undir markaðs og kynningarmál. Ég hefði þá getað sagt mig úr stjórn þann 6.nóvember. Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera samkvæmur sjàlfum mér, mótmæli àfram laxeldi í sjó og styð og styrki IWF.

Það má taka mig út af vefnum svo hætt verði að hafa samband við mig útaf þessu máli. Gangi ykkur sem allra best og áfram handbolti.

Bestu kveðjur Davíð Lúther“