Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Frumsýning á baráttumyndbandi á Seyðisfirði

Frumsýning á baráttumyndbandi á Seyðisfirði

Frumsýning á morgun. Horfum og deilum! Styðjum Seyðfirðinga ❤️ Austurfrétt fjallaði um frumsýninguna: „Við ætlum með þetta myndband út um allan heim og fá fólk með okkur í lið til að þrýsta á stjórnvöld um að gera það sem er rétt í þessu máli,“ segir Benedikta Guðrún...

ASC „vottun“ Kaldvíkur er grænþvottur

ASC „vottun“ Kaldvíkur er grænþvottur

Við viljum benda lesendum á að þessi slappi ASC stimpill er ekki fyrir fyrirtæki í heild heldur stök sjókvíaeldissvæði sem þau eru með í rekstri. Þannig geta fyrirtækin verið með allt niðrum sig á öllu nema einu svæði (sjúkdómar, dauði, lús, eitranir og sleppingar) en...

Ritstjóri Intrafish segir kominn tími á að stöðva sjókvíaeldi

Ritstjóri Intrafish segir kominn tími á að stöðva sjókvíaeldi

Þetta eru stórtíðindi! Intrafish er langstærsti og virtasti fagmiðill heims um sjávarútvegsmál. Höfundur greinarinnar, Drew Cherry, er ritstjóri hjá miðlinum og álitsgjafi í þungavigt um laxeldi. Þegar hann skrifar fyrir hönd Intrafish að nú sé kominn tími til að...