Á undanförnum árum hefur þjóðin verið að fjárfesta tugi milljarða í skólphreinsistöðvum til að hætta að losa óhreinsað skólp í sjó.
Á sama tíma hefur skólpmengun margfaldast í hafinu kringum Ísland vegna opins sjókvíaeldis á laxi. Í fyrra losaði sá iðnaður skólp á við 816 þúsund manns í hafið.
Ástæðan fyrir þessu er að stjórnvöld ákváðu að búa til sérlög og undanþágur frá lögum og leyfa sjókvíaeldisfyrirtækjunum að losa skólpið frá starfseminni óhreinsað í hafið. Þetta er auðvitað glórulaust.
Við mælum með að hlusta á fréttaskýringu RÚV um hvers hrikaleg mengunin frá þessum iðnaði er í Noregi. Þar fer skólp á við alla Ástralíu í hafið á hverju ári, eða ígildi 20 til 30 milljón manns.