Við mælum með hlustun. Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir fjalla um málsmeðferð Matvælastofnunar Noregs sem sektaði norska sjókvíaeldisfyrirtækið Leroy fyrir gróft brot á lögum um velferð dýra.

Í þættinum skoða þau hvort og þá hvernig íslenska Matvælastofnunin (MAST) reynir að koma í veg fyrir að sambærileg brot á velferð eldisdýranna eigi sér stað í sjókvíaeldi á Íslandi?

(Spoiler þau hafa orðið hér og mun verri en í Noregi)

Rætt er við forstjóra MAST, Hrönn Jörundsdóttur, og dýralækninn Egil Steingrímsson sem mun taka við eftirliti MAST með laxeldi í næsta mánuði.

Þátturinn var á dagskrá RÚV 15 ágúst og er aðgengilegur í spilara RÚV.

Matvælastofnun Noregs hefur sektað norska laxeldisfyrirtækið Leroy fyrir gróft brot á lögum um velferð dýra.

Hvað gerir íslenska Matvælastofnunin til að koma í veg fyrir að sambærileg slys eigi sér stað í sjókvíaeldi á Íslandi?

Norsk laxeldisfyrirtæki eiga meirihluta í íslensku sjókvíaeldi. Þetta helst ræðir við forstjóra MAST, Hrönn Jörundsdóttur, og dýralækninn Egil Steingrímsson sem mun taka við eftirliti MAST með laxeldi í næsta mánuði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir