Fimm sinnum fleiri Íslendingar eru á móti sjókvíaeldi á laxi en þeir sem styðja þennan skaðlega iðnað.
Og við eigum okkur samherja víða um heim, fólk sem skilur verðmæti líffræðilegs fjölbreytileika og óspilltrar náttúru.
Meðlimir Pearl Jam eru með okkur í liði.
Vísir fjallar um stuðning Pearl Jam við íslenska laxinn:
Hljómsveitin Pearl Jam segist standa með íslensku þjóðinni í baráttunni fyrir því að binda enda á laxeldi í opnum sjókvíum. Í færslu á Instagram hvetur hljómsveitin aðdáendur til að skrifa undir undirskriftalista þess efnis.
…
Í myndbandi sem birt var á Instagram-reikningi hljómsveitarinnar í kvöld segir að frumvarp um fiskeldi á Íslandi heimili enn frekari stækkun á laxeldi í sjókvíum. Því hvetji þau fólk til að fara inn á LetsUndoThis.com og skrifa þar undir ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að gera breytingar á frumvarpinu.